Færsluflokkur: Bloggar

Hér telja margir....

...uppá að sé um alvöru mann að ræða og sjálfsagt á hann eftir að verða enn frægari í kunningjahópnum, en þar líkur líka sniðugheitunum hjá kallkvölinni. Honum er bara hægt að vorkenna heimskuna og vonast til að hann verði settur í langt frí frá akstri ökutækja.Shocking
mbl.is Ölvaður farþegi henti bílstjóranum út og ók sjálfur í bæinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Spítalamatur.

Það er svo sem ekki grín að því gerandi, en ætli nokkur sé undrandi á að hann lendi á sjúkralistanum þessi. Kallgreyið....Woundering
mbl.is Owen tognaði í læri og leikur ekki gegn Króatíu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Enn eitt dæmið.

Hér kemur enn eitt dæmið um makalaus vinnubrögð hjá þessum dómstóli. Málið er skilið eftir í lausu lofti, engin niðurstaða, þannig að á næsta tímabili gætu menn farið að halda að það væri í lagi með bensínið í þessu formi.....eins víst að ef einhver kærir svo þá, verði allt annað uppi. Bölvaðir aular...Shocking
mbl.is Áfrýjun McLaren nær ekki fram að ganga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Enn fréttir af græðgisvæðingu.

Ekki virðist ennþá vera sopið kálið úr ausu Eyjamanna í Vinnslustöðinni. Það er engin hætta á öðru en að þeir bræður geti velt þarna við ýmsum steinum og ekki ólíklegt að víða gjósi upp ólykt ......allavega þefur af hagsmunaárekstrum....Cool
mbl.is Nýs hluthafafundar krafist í Vinnslustöðinni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þeir "Púllarar".

Auðvitað sjá þeir þetta og viðurkenna vandann leikmenn Liverpool, það er ekki spurning. Það er hinsvegar meiri spurning með stjórnendurnar og/eða eigendurna...?
mbl.is Gerrard vill takmarka fjölda útlendinga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Andskotans óeðli.

Hvað er eiginlega í gangi í hausnum á þessum aulum? Það er alveg augljóst að samfélagið þarf að senda út eitthvað önnur skilaboð en verið hefur, menn þurfa að vita það að svonalagað sé ekki liðið og það þarf að hjálpa þessum mönnum með einhverju móti.....Crying
mbl.is Tveir grunaðir um hrottalega nauðgun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Veit ekki alveg....?

Ég veit nú ekki hvort þeir eru bestir í heiminum, en helvíti nærri því. Arsenal er í dag, eins og raunar staða þeirra í Englandi gefur til kynna, með afar gott lið og spila mjög skemmtilegan bolta. En ég er nú með annað lið í huga, sem hefur verið á mikilli siglingu undanfarið.......Smile megið geta einu sinni....Smile
mbl.is ,,Arsenal besta liðið í heimi“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Jafnaðarkaup"

Ég held nú að ekki þurfi útlendinga til að samþykkja á sig "jafnaðarlaun". Veit ekki betur en það sé þekkt hér hjá okkur til margra ára án þess að um erlenda starfsmenn sé að ræða..?
mbl.is Oftar brotið á útlendingum á Suðurlandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvergerðingar...takk fyrir!!

 

mynd
Aldís Hafsteinsdóttir hefur engan áhuga á stríði við Ölfusinga, en finnst sérkennilegt ef þeir virða vilja Hvergerðinga að vettugi.Mynd/Egill Bjarnason

„"Ég ætla ekki að trúa því fyrr en ég tek á því að nágrannasveitarfélagið taki ekki tillit til okkar hagsmuna," segir Aldís Hafsteinsdóttir, bæjarstjóri Hvera­gerðis.

Ólafur Áki Ragnarsson, bæjarstjóri Ölfuss, sagði hér í blaðinu á föstudaginn að neikvæð afstaða Hvergerðinga til Bitruvirkjunar hefði ekki úrslitaáhrif á áform sveitarfélagsins um hana. Þetta, segir Aldís, „væri auðvitað mjög sérkennilegt, ef þeir ákveða að hundsa skýran vilja bæjarbúa".
Bæjarráð Hveragerðis ítrekaði í gær andstöðu bæjarbúa og telur að framkvæmdin geti skaðað framtíðarmöguleika bæjarins.

„Bitruvirkjun er í túnfætinum á okkar sveitarfélagi og við værum aum bæjarstjórn ef við hefðum ekki skoðun á því hvað þar fer niður," segir Aldís og bendir á bein áhrif virkjunarinnar, fýluna:

„Matsaðilarnir telja að hér verði lyktarmengun í allt að sjötíu daga á ári, fyrir utan að gönguleiðirnar og þessi ferðamannaparadís er ofboðslega skemmtilegt svæði. Hengilssvæðið er sett í svo til allar erlendar ferðamannahandbækur og okkur ber skylda til að standa vörð um þessa hagsmuni," segir Aldís.

Hún er því sammála þeim orðum bæjarstjóra að maðurinn lifi ekki á loftinu einu saman, „en það þarf bara að vanda til verka". - kóþ"

Það væri nú að bera í bakkafullan lækinn að ætla að barna þessi ummæli eitthvað en.....Hvergerðingar eru upp til hópa gott fólk og þannig fólk á að eiga pláss í hjörtum okkar, ég er algerlega sammála Aldísi og ætlast til þess að allt upplýst fólk skoði hug sinn varðandi þessi mál með opnum huga......Smile


Fréttir af Grindvíkingum...

"Grindvíkingar stórhuga"


Grindvíkingar kynntu í gær á aðalfundi Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum stórhuga framtíðar atvinnuuppbyggingu þar sem boðið verði upp á orku og nægt landrými fyrir áhugasöm fyrirtæki. Þetta séu nýjar varnaraðgerðir vegna mikillar óvissu í sjávarútvegi.

Orka, umhverfi og hagkvæmni eru lykilorðin í framtíð atvinnuuppbyggingar í Grindavík en heimamenn eru afar ósáttir við mótvægisaðgerðir ríkisstjórnarinnar og horfa nú fram á veginn á annað en sjávarútveg. Þar sé ríkisvaldinu ekki treystandi.

Ólafur Örn bæjarstjóri Grindavíkur flutti erindi þar sem hann lýsti áformum heimamanna um varnaraðgerðir vegna óvissu í sjávarútveginum.

"Við erum að bregðast við þessari óvissu með nýju útspili í atvinnumöguleikum hér í Grindavík. Við erum að skipuleggja stór iðnaðarsvæði og ætlum okkur að nýta orku hér í okkar landi. Það eru fyrirtæki sem hafa verið í sambandi við okkur, m.a. eitt mjög stórt og önnur minni þannig að málið er komið af stað. Við munum fara í öfluga markaðssetningu á Grindavík út frá þessum þætti og beina henni til fyrirtækja sem þurfa orku og landssvæði.

Það er stefnt að því að vinna þessi mál í samvinnu við Hitaveitu Suðurnesja. "Við viljum sjá uppbyggingu atvinnusvæði hérna megin á skaganum líka. Aðalatriðið er að bregðast við óvissu ástandi í sjávarútveginum. Við erum neyddir til þess.Ekki hafa stjórnvöld létt okkur lífið eftir niðurskurðinn þar og þess vegna þurfum við að taka nýjan vinkil í okkar framtíðaruppbyggingu."

 Svona hljóða fréttir gærdagsins af þeim grönnum okkar í vestri. Ólík eru nú efnistökin hjá þeim eða okkur, hér grenja menn úr sér augun yfir að vera að leggja á hilluna áform um Álbræðslu (sem reyndar var aldrei neitt nema froðan) en ég sé ekki neinn harmagrát í þessari frétt og hvergi minnst á Álver. Auðvitað er hægt að draga að sér eitthvað í staðinn fyrir sjávarútveginn, allavega á þessum svæðum hér í kringum höfuðstaðinn...


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Hafsteinn Viðar Ásgeirsson
Hafsteinn Viðar Ásgeirsson
Ágúst 2025
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.8.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 8
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 8
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband