Færsluflokkur: Bloggar

Sanngjarn sigur.

Sem hefði átt að gera út um í leiknum. Engin sérstök reisn yfir spilamennskunni, en mínir menn þó skárri. Vantaði reyndar lykilmenn hjá Chelsea sem sjálfsagt hefur verið saknað
mbl.is Man.Utd. vann Samfélagsskjöldinn - Van der Sar varði þjár vítaspyrnur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hamilton var frábær.

Hamilton stóðst þetta próf með sóma. Sigurinn var raunar aldrei í neinni hættu og bíllinn virðist vera mjög traustur.
mbl.is Hamilton stóðst pressu Räikkönens
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mjög hagfellt.

Þetta er afar góður endir á vondri sögu að lenda í skurðinum. Skurðirnir eru frábær lausn fyrir þá sem ekki eiga erindi á vegunum.
mbl.is Ölvaður ökumaður út af vegi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sanngjarnt.

Þessi úrskurður er ekkert annað en sanngjarn. Hinsvegar getur þetta æst villidýrið í Alonso og ef það gerist getur þetta orðið hið besta mál fyrir McLaren. Alonso átti þetta skilið og vonandi að hann læri eitthvað af þessu.
mbl.is Alonso sviptur ráspólnum í Búdapest
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Alonso....

....tók nú bara pólinn, að öllum líkindum vegna þess að Hamilton gat ekki klárað síðasta hringinn. Aðalmálið er samt að þeir félagar eru á fyrstu pólum og ef ekkert kemur fyrir er MacLaren í fantagóðri stöðu á morgun.
mbl.is Alonso tók pólinn af Hamilton
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Borg óttans."

Það er nokkuð öruggt að eiturfíklar og slíkur lýður hefur ekki farið neitt. Mikið lagt undir við leit að eitri í kringum útihátíðir og dóplýðurinn er ekkert að taka séns á því. Ég spái því að vandræðin aukist bara eftir því sem líður á helgina og vonandi að fólk sem er í burtu sé með vöktun á eigum sínum.
mbl.is Erill í miðborginni í nótt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Biðskylda.

Það er allt of mikið um að fólk ekki virði ekki biðskyldu og raunverulega allar reglur. Ég var á eftir bíl núna á dögunum og við vorum að koma að gatnamótum hvar orðið hafa allt of mörg banaslys. Það skipti engum togum að konan á undan skellti sér beint inná til að komast fyrir bíl sem var að koma, gegn stöðvunarskyldu. Hægriréttur er eitthvað sem enginn virðist horfa eftir lengur, ég keyri oft á dag út úr botnlanganum hjá mér og ef maður fer útí götuna og tekur sinn rétt þá horfa þeir á mann eins og maður sé eitthvað að gera af sér. Á hjólinu tek ég bara aldrei neinn svoleiðis séns og reikna bara alltaf með því að á manni verði svínað.

Því miður verður það að segjast að umferðarmenning landans er ekki eins og hún þyrfti að vera og þá eru vélhjól í sérstakri hættu, að sjálfsögðu.


mbl.is Þvinguð út af veginum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ég hélt nú....

....að það væri ekkert verið að halda uppá hunda sem bíta eða sýna tennurnar, þeir fengju bara dauðadóminn strax og honum fullnægt samstundis...Shocking
mbl.is Hundar Ving Rhames taldir hafa drepið mann
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ótrúleg vinnubrögð.

Það virðist alveg ljóst að það verður að breyta vinnubrögðum varðandi svona virkjanir. Þetta er önnur svona framkvæmdin sem er að koma upp núna þar sem veitt er leyfi fyrir einu og síðan er eitthvað allt annað framkvæmt. Hreint verður að telja með ólíkindum að eftirlit skuli ekki vera með þeim hætti að óvönduð vinnnubrögð og að ekki sé nú talað um ósköpin, að menn búi bara til sína eigin hönnun og verkferla séu liðin.

Hér verður að spyrna við fótum og beita þeim viðurlögum sem menn munar um, það hefur verið gert af minni tilefnum.


mbl.is Virkjunarframkvæmdir við Seyðisfjörð í ólestri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það fáránlega við þetta.

Er bara það að þetta fornfræga félag, staðsett í stórborg með gríðargott bakland skuli vera í þessari stöðu, alveg fáránlegt. Og ekki hefur það lagast með Bates og hann virðist ekki vera að veðja miklu af peningunum sínum á liðið. Það hlýtur hinsvegar að vera djöfullegt að vera að grufla í þessu alveg fram að móti, en væntanlega er einhverju fleiru en stjórn deildarinnar um að kenna.
mbl.is Leeds byrjar með 15 stig í mínus
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Hafsteinn Viðar Ásgeirsson
Hafsteinn Viðar Ásgeirsson
Ágúst 2025
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.8.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 23
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 11
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband