Færsluflokkur: Dægurmál

Ja hérna.

Þetta hefði nú einhverntíman þótt saga til næsta bæjar. En ætli ekki endi með því að lífgjafarnir verði Rússar og Kínverjar? Ekki vildi BNA Seðlabankinn hafa okkur með í samningnum við Norðurlöndin svo þessi hjálp er örugglega kærkomin.
mbl.is Seðlabankinn fær lán frá Rússlandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Björgvin að standa sig.

Hann er alveg að virka undir álaginu hann Björgvin og kemst frá sínum hlut með sóma, þrátt fyrir ekki mjög mikla reynslu í pólitíkinni. Það er svo sem örugglega ekkert skemmtiefni að sitja við þetta borð í augnablikinu og þarf örugglega til þess sterk bein, en þau virðist hann hafa strákurinn.

Það verður svo klárlega enn snúnara þegar menn þurfa að taka þátt í mistökum eins og stjórnin er leidd inní af Seðlabankanum í þessu Glitnismáli, en mestu skiptir, að geta komið til baka með eitthvað nothæft.


mbl.is „Allt gengur sinn vanagang“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Moggi að búa til fréttir?

Það er einna líkast því að það sé verið að framleiða fréttir hérna. Það er samt eitthvað sem ekki virðist vera mikil þörf á um þessar mundir og jafnvel ekki mikið gagn að slíku. Nema að tilgangurinn geti verið að laga Geir og hans yfirlýsingu á mánudagsnóttina til í andlitinu?
mbl.is Aldrei stóð til að gjaldfella lán Kaupþings
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Alvarlegri en talið var af hverjum?

Það er alveg sama hvernig þessu máli er snúið, menn eru búnir að vera uppí eyru í tómu bulli. Allt sem frá þeim kemur er eins og bensín á eldinn. Það kæmi reyndar mjög á óvart ef Guðni ætti eitthvað uppí erminni sem gæti orðið að gagni.

Við getum öll verið sammála um að auka Þorskkvótann, það eru engin geymvísindi, það er nægur þorskur, allsstaðar nema í tölvum fiskifræðinga svo það er ekki flókin aðgerð. En mér segir svo hugur að eitthvað meira þurfi nú til en það.


mbl.is Alvarlegri en talið var
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Held manninum sé ekki orðið sjálfrátt.

Hafi honum einhverntíman verið það. Hann virðist allavega vera að leka niður við aðstæður sem ekki eru þær heppilegustu til þess.

Hvað þýðir það núna að morgni að "staðan sé mjög alvarleg?" Í nótt var staðan þannig að það var ekki orðin þörf á neinum aðgerðum, að loknum fundahöldum sólarhringum saman? Það virðist alveg fullreynt að hann Geir hefur ekki tök á neinu nema að hella meira bensíni á eldinn.

Ég held að þetta þýði ekki bara að staðan sé alvarleg, ég er farin að halda að hún sé SKELFILEG og finnst ég fá um það staðfestingu í hvert sinn sem Geir opnar á sér munninn. En fundirnir eru margir, langir og örugglega leiðinlegir, það eru þeir alltaf þegar ekkert liggur eftir sem gagn er að.


mbl.is Geir: Staðan mjög alvarleg
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað er í gangi? Hefur maðurinn ekki hlustað á Guðfaðirinn?

Ég held að það sé nokkuð ljóst að hér talar einhver sem ekki þekkir innviðina. Hefur maðurinn virkilega sagt og skrifað þessa "vitleysu" án þess að fá línuna frá flokknum? það er mér nær að halda og verður að teljast afar klaufalegt, það er ekki hægt að taka mark á svoleiðis fólki. Við verðum að vita hvað til okkar friðar heyrir og til þess höfum við Godfather.
mbl.is „Fráleitt að Glitnir hefði orðið gjaldþrota"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sammála Scolari þarna.

Martin O'Neill er klárlega með bestu þjálfurum úrvalsdeildarinnar, það hefur hann margsýnt og sannað.
mbl.is Scolari: O´Neill er einn sá besti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mikilvægur sigur.

Afar mikilvægur sigur minna manna. Þeir eru vonandi komnir á siglingu sem dugir til að halda titlinum í úrvalsdeildinni. Að því er stefnt hraðbyri, að sjálfsögðu.
mbl.is Man. Utd sigraði í Blackburn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fullur og óskoraður stuðningur úr sandkassanum.

Það er mikið mál greinilega, að berja saman stuðning við Bangsa. Auðvitað styðja mennirnir sitjandi dómsmálaráðherra, þó nú væri. Sá líka einhversstaðar að Halli er voða hissa á gagnrýni Jóhanns á sig og þótti nú engum mikið heldur. Held reyndar að hann sé oftar en ekki dálítið hissa á öllum sem ekki dansa á línunni hans og Bangsa. En það er sem sagt stuðningur í sandkassanum og Halli ríkissjóðs getur verið voða sáttur með það, enda í kassanum sjálfur.
mbl.is Styðja dómsmálaráðherra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eftir höfðinu dansa jú limirnir.

Það getur aldrei orðið öðruvísi. Bangsi virkar bara svona, með Halla ríkissjóðs og allan hans skít í pokanum. Það eru ekki aðrir en kóarar eins og Leggur og aðrir álíka sem virka í svona jarðvegi. Þarna þrífst enginn nema vera á línu þessara gæja og Goggi í Gæslunni svona sleppur, enda sömu gerðar.

Þarna verður nú, fyrr en seinna, að taka til hendinni, hann Bangsi er alveg búinn áðí held ég.


mbl.is Lögregla í sandkassaleik
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Hafsteinn Viðar Ásgeirsson
Hafsteinn Viðar Ásgeirsson
Ágúst 2025
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.8.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 19
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 7
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband