Eitthvað sem flestir hafa á tilfinningunni.

Útkoman í þessari könnun er nú eitthvað sem flestir hafa á tilfinningunni. En er það nokkuð sem stjórnmálamenn þurfa að gera eitthvað með? Alls ekki víst að svo sé, ef við skoðum t.d. fylgi þjóðarinnar við kvótakerfi þeirra félaga Framsóknar og andskotans, þá sjáum við samfellda andstöðu við það nánast frá upphafi sem enginn virðist gera neitt með. Það m.ö.o. virkar ekki lýðræðið þegar kemur að svona málum, fólk hefur á því ákveðna skoðun en þegar kemur í kjörklefann þá kýs það eins og pabbi og afi og allir í kringum það gerðu. Þannig að mér er nær að halda að Davíð haldi áfram að fá sínu framgengt varðandi Evrópusambandið og þessi guðsvolaða þjóð fái að borga af því herkostnaðinn enn um sinn.


mbl.is 67,8 vilja hefja undirbúning aðildarumsóknar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

                          Heilaþvotturinn heldur áfram!

Fólkið er farið að trúa því að innganga okkar í Evrópusambandið og svo í framhaldinu upptaka á evru muni hjálpa þeim sem geta ekki hjálpað sér sjálfir þ.a.s. borga skuldir sínar við útlönd sem núna eru hjá ''ríkustu þjóð'' veraldar um 500% af vegri landsframleiðlu. Trúir fólk virkilega að skuldir okkar hverfi við inngöngu?

Ef Alþingi fasttengir íslensku krónunna með hóflegum vikmörkum  við evruna með lögum á morgun hefur það strax sömu virkni í hagkerfinu og ef Ísland gengi inn í Evrópusambandið og tæki upp evru í dag t.d. yrði krónan strax jafnsterk  og evran við slíka lagabreytingu, mjög mikið atvinnuleysi yrði til á einni nóttu, hríðlækkandi vextir kæmu strax og gríðarlega mikið af gjaldþrotum yrðu bæði hjá fyrirtækjum og einstaklingum.

Er eitthvað talað um þetta í könnunum áður en spurt er hvort viðkomandi vilji hefja undirbúing á aðildarviðræðum við ESB??

Við verðum að bera ábyrgð á okkur sjálf og taka slaginn á okkar forsendum sé þess nokkur kostur ef ekki er lýðveldið Ísland fyrir bí og við getum skammast okkar gangvart forfeðrunum okkar.

Baldvin Nielsen, Reykjanesbæ

B.N. (IP-tala skráð) 20.4.2008 kl. 10:40

2 Smámynd: Óðinn Þórisson

Sf setti þetta mál ekki á dagskrá fyrir síðustu kosningar og skrifaði undir það að þetta væri ekki dagskrá þessarar ríkisstjórnar.
ESB aðild er ekki á stefnuskrá Sjálfstæðisflokkins og þar til landsfundur ályklar um annað þá er þetta ekki á dagskrá.
Hafðu í huga Hafsteinn að þetta er skoðanakönnun sem Fréttablaðið gerði.

Óðinn Þórisson, 20.4.2008 kl. 10:45

3 Smámynd: Björn Heiðdal

Afhverju verður mikið atvinnuleysi ef við tengjumst evrunni?

Björn Heiðdal, 20.4.2008 kl. 12:16

4 Smámynd: Hafsteinn Viðar Ásgeirsson

Það er partur af heilaþvotti Sjálfgræðisflokksins Björn, sem svo berja á öðrum fyrir heilaþvott, algerlega rakalaust.

Svona svipað og málflutningurinn um kvótakerfi í sjávarútvegi hvar þeir halda því stöðugt fram að ekki sé bent á neitt í staðinn fyrir núverandi glæpamennsku, alveg sama hvað er mikið týnt til af leiðum útúr ruglinu.

Hafsteinn Viðar Ásgeirsson, 20.4.2008 kl. 12:25

5 Smámynd: Jónas Tryggvi Jóhannsson

Samfylkingin setti þetta víst á dagskrá fyrir síðustu kostningar, en setti þetta bara ekki á dagskrá í núverandi ríkistjórn því samstarfsflokkurinn er á móti. Atvinnuleysi mun ekkert aukast við ESB inngöngu, það er mögulegt að atvinnuleysi muni aukast tímabundið á meðan við erum að ná almennilegri hagstrjórn á íslandi, en það þarf að gerast sama hvor við erum í ESB eða ekki. Þar skiptir meira máli að stemma stigum við verðbólgu en að halda atvinnustígi þjóðarinnar eins og það er í dag þar sem allir fá auðveldlega vinnu.

Jónas Tryggvi Jóhannsson, 20.4.2008 kl. 12:36

6 Smámynd: Brattur

... ef við göngum í ESB þá skilst mér að almenningur komi til með að borga mun minna í vexti en nú er... kannski 0,5 - 1,0 milljón árlega pr. haus. Það munar um minna... hinsvegar set ég spurningamerki við óheftan innflutning landbúnaðaafurða...

Brattur, 20.4.2008 kl. 15:22

7 identicon

Grein eftir undirritaðan hér fyrir neðan sem birtist í Morgunblaðinu 6.júni 2004 er svo sannalega að sanna sig í dag. Vona að fólk átti sig hvað er að gerast þessa daganna og takið sérstaklega eftir í greininni sem er svart letrað þar sem þar stendur er að gerast í dag hugið hvað er að gerast með sem dæmi REI, Hitaveitu Suðurnesja, og afhverju skipaði viðskiftaráðherra nefnd sl. haust til að skoða að hleypa erlendum fjárfestum inn í útgerðina? 

Atburðarrásin sem núna hefur verið hleypt af stokkunum er hluti af því sem á að taka við mestu svikamyllu sem um getur hér á landi þá undir heila þvotta orðinu ''Góðæri ''góðærið hefur vissulega verið hér á landi í töluverðan tíma en það var bara hjá hinum fáu útvöldu. Þeir skulda ekki neitt og eiga mjög marga milljarða. Margir þeirra hafa flutt lögheimilið sitt út fyrir landssteinanna. Afhverju?

Lýðveldið Ísland og Evrópusambandið 

 

,,


Hæstvirtur forsætisráðherra Davíð Oddsson fór fyrst fyrir ríkisstjórn 1991 þá í samstarfi með Alþýðuflokknum (Samfylkingin). Formaður Alþýðuflokksins var Jón Baldvin Hannibalsson og jafnframt utanríkisráðherra í þeirri ríkisstjórn. Hún gekk undir nafninu Viðeyjarstjórnin.

Á þeim tíma leiddi Jón Baldvin þá vinnu að koma í höfn samningi um Evrópska efnahagssvæðið (EES) og við þau tímamót þegar skrifað var undir samninginn lét ríkisstjórnin í það skína að við Íslendingar hefðum fengið nánast allt fyrir ekkert og velmegun myndi aukast verulega þegar fram liðu stundir.

Andstæðingar aðildar vildu láta reyna á tvíhliða viðræður við Evrópusambandið (ESB) um samning sem yrði svo hægt að auka að efni til eftir atvikum. Þeir sem voru á móti EES samningnum töldu hann ekki verða til góðs því með honum yrðu tekin tvö skref af þremur inn í ESB sem hefði í för með sér brot á fullveldisákvæðum íslensku stjórnarskrárinnar.

Annað ákvæði í EES- samningnum um frjálst fjármangsflæði milli aðildarríkjanna skipti sköpum og fullveldissinnar treystu því ekki að okkar litla hagkerfi stæðist ágang erlends fjármagns og myndi því hreinlega sogast inn í hringiðu hagkerfis Evrópusambandslandanna. Þetta myndi leiða til þess að Íslendingar misstu efnahagslegt sjálfstæði sitt í framtíðinni.

Eins og sjá má á þjóðmálaumræðunni í dag hafa erlendar skuldir landsmanna vaxið langt umfram getu okkar litla hagkerfis eftir inngönguna í EES og hafa þær aldrei verið meiri. Góðæriskenningin á sínar rætur frá þessari þróun, skuldir undirstaðan þó þeirra væri aldrei getið í sjálfum málflutningnum þ.e.a.s. þeirra sem studdu EES samninginn. Sannarlega hafa þær verkað sem driffjöður á lífæð hagkerfisins hér á landi, já, hér er verið að tala um skuldir, sem jafnframt hafa verið stór þáttur stöðugleikans, svokallaða.

En hvar er hin raunverulega framleiðni? Uppsveifluna í efnahagslífinu má rekja að mestu leyti til uppbyggingar á Stór- Reykjavíkursvæðinu sem varð til vegna landsbyggðarflóttans sem hefur verið mikill síðustu tvo áratugina. Hornsteinn þessarar þróunar, (landsbyggðarflóttinn annars vegar og fjármagnsstreymið til uppbyggingar hér syðra hins vegar) var lagður með kvótabraskkerfinu sem tryggt var svo í sessi með aðildinni að EES samningnum, áratug síðar. Þetta gerði hinum fáu útvöldu kleift að fjármagna mestu búsyfjan af mannavöldum í sögu þjóðarinnar.

Alls kyns spákaupmennska hefur rutt sér til rúms síðustu árin þar sem arður er gerður úr væntingum og greiddur út í milljörðum til réttra aðila. Þetta hefur verið að gerast í íslensku atvinnulífi og nú síðast í sjávarútveginum á Akureyri, svo tekið sé dæmi. Sameiningarferli íslenskra fyrirtækja undir nafninu ,,Hagræðing” er eingöngu til þess fallið að fyrirtækin geti haldið sjó á meðan þau eru að ná þeim stærðum á markaðinum að þau verði góður fjárfestingarkostur fyrir stóru erlendu fjárfestana sem bíða handan við hornið.

Lykilinn til að ná þessum markmiðum endanlega er innganga okkar í ESB svo að erlendir fjárfestar geti eignast hér áhrif og völd í framtíðinni í okkar annars auðuga landi. Með inngöngunni myndu hinir fáu útvöldu áskotnast mikið fé við að selja auðlindir íslensku þjóðarinar ásamt réttindum til lands og sjávar sem þeir hafa verið að söðla undir sig síðustu misserin geng vilja þorra landsmanna.

Íslenskum útflutningsfyrirtækum er fyrirmunað að stunda sjálfbæran og heilbrigðan atvinnurekstur svo sem í sjávarútvegi og iðnaði. Þau heyja allt að því vonlausa baráttu vegna kvótabraksins og hátt gengis íslensku krónunnar en í staðinn hefur rekstrargrundvelli þeirra verið haldið gangandi með stöðugu flæði af erlendu lánsfé inn í hagkerfið. Gjaldþrot hafa verðið með mesta móti á síðasta ári og sér ekki fyrir endann á þeirri óheilla þróun.

Samtök iðnaðarins hafa staðfest flótta iðnfyrirtækja frá Íslandi. Þreytumerki hafa líka komið fram hjá fyrirtækjum sem framleiða gjaldeyrissparandi vörur fyrir innanlandsmarkað og eru í samkeppni við innfluttar vörur sem eru ódýrari en ella vegna gjaldeyrisútsölunnar. Framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins Sveinn Hannesson vísaði til þeirra staðreynda í Viðskiptablaði Mbl. 26. febrúar s.l. þegar hann sagði að mörg fyrirtæki væru í rekstri þrátt fyrir að í raun væru þau löngu orðin gjaldþrota. Þar kom einnig fram að Samtök iðnaðarins teldu að full aðild að ESB og upptaka evru væri besta vörnin til að bæta markaðsstöðu íslenskra útflutningsfyrirtækja.

Hér ber að hafa í huga þegar Íslendingar gerðust aðilar að EES samningnum töldu sömu aðilar að stigið hefði verið eitt stærsta skref til sóknar fyrir atvinnulífið hér á landi. Stundum verður manni á að þekkja ekki muninn á vörn og sókn þegar kemur að framsetningu markaðsmála.

Matarbúr landsmanna, íslenski landbúnaðurinn, sem er einn stærsti öryggisþáttur í almannavörnum þjóðarinar, vegna legu landsins sem eyríki, er í hættu vegna áhrifa frá Evrópusamrunnanum. Hörðustu stuðningsmenn aðildar að ESB er að finna í Samfylkingunni og vilja þeir hefja aðildarviðræður sem fyrst. Framsóknarflokkurinn er líklegastur ásamt Samfylkingunni að vera í þeirri ríkisstjórn sem myndi samþykkja inngöngu okkar inn í Evrópusambandið.

Hæstvirtur utanríkisráðherra Halldór Ásgrímsson, formaður Framsóknarflokksins, sem settist í stól fyrirrennara síns Jón Baldvins hefur verið að undirbúa jarðveginn fyrir seinni áfangann að Ísland geti tekið þriðja skrefið inn í ESB. Það verður fróðlegt að fylgjast með framvindu mála í umræðunni um ESB hér á landi eftir að verðandi forsætisráðherra Halldór Ásgrímsson tekur við starfanum 15 september n.k úr hendi núverandi hæstvirts forsætisráðherra Davíðs Oddssonar, formanns Sjálfstæðisflokksins.''

Baldvin Nielsen ,Reykjanesbæ

B.N. (IP-tala skráð) 20.4.2008 kl. 16:10

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Hafsteinn Viðar Ásgeirsson
Hafsteinn Viðar Ásgeirsson
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 34
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 34
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband