28.6.2008 | 09:11
Nú er að duga eða drepast.
Það er mikið til í því hjá honum Martin, að nú verða þeir að taka sig saman í andlitinu og sparka frá sér. Þeir virðast hafa verið að fá árangur undir getu sem er blanda af klaufaskap og óheppni í mörgum tilfellum og nú er að taka til hendinni, ef ekki á illa að fara.
McLaren ætlar að klóra í bakkann | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Færsluflokkar
Bloggvinir
- baldurkr
- hallgrimurg
- solir
- jakobk
- gretarro
- sailor
- hallibjarna
- framtid
- sisshildur
- king
- siggith
- start
- helgigunnars
- villialli
- himmalingur
- drum
- gisgis
- hallidori
- xfakureyri
- ferskur
- gisliivars
- johnnybravo
- peturorri
- baldvinj
- bjarnihardar
- gudmbjo
- gudni-is
- bleikaeldingin
- fruheimsmeistari
- gudrunmagnea
- gustav
- reynzi
- zeriaph
- gattin
- seinars
- siggisig
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Alveg er ég sammála þér þarna, þetta er ekki sá staður sem McLaren ætti að vera á, en eins og þeir sögðu í Afganistan; "shit happens". Jú þetta er samblanda af klaufaskap og óheppni en það er frekar ólíklegt að það gangi manni alltaf allt í haginn. Þótt báðir ökumennirnir hafi sýnt það að þeir séu fantagóðir ökumenn þá höfum við fengið að sjá það að Hamilton er mannlegur og getur gert mistök og það mjög stór og Kovalainen vantar þennan stöðugleika sem góður ökumaður þarf að hafa, það er ekki nóg að skila góðum árangri í einu móti og vera svo með "slakur" í tveimur næstu. Þarna tel ég helsta vanda liðsins vera, bíllinn virðist vera sæmilega "öruggur" (en á tímabili gekk illa að koma báðum bílunum í mark en það vandamál virðist vera úr sögunni). Þetta hlýtur að fara að lagast hjá þínum mönnum.
Jóhann Elíasson, 28.6.2008 kl. 11:26
Er eitthvað lið í formúlunni með því nafni....
Ég hélt að þú værir að tala um fyrrverandi landliðsþjálfara Englands í fótbolta....
Hallgrímur Guðmundsson, 28.6.2008 kl. 18:47
Þú ert góður með þig núna helvítskur og hefur enda efni á því. En koma tímar og koma ráð, það er ekki ástæða til að gefast upp ennþá fyrir rækju og Co.
Hafsteinn Viðar Ásgeirsson, 28.6.2008 kl. 19:14
Hver andskotinn er þessi formúla sem alltaf er verið að röfla um? Er þetta íþrótt eða eitthvað ofan á brauð? Sá einhvern tíma í sjónvarpinu rauðan fiat keyra í hringi og hélt að þetta væri eitthvað í samhengi við það en þá getur þetta ekki verið íþrótt því ég átti einu sinni rauðan fiat og sú "bifreið" átti ekkert skylt við Íþróttir. Eintóm óhamingja eins og fylgir flestu sem ítalskt er.
Víðir Benediktsson, 28.6.2008 kl. 20:53
Ég held að þú viljir endilega vita þetta félagi....
Og svo er ég handviss um að þetta sé eitthvað sem er bráðnauðsyn fyrir þig að vita...
Þú veist hvernig þú nærð í mig félagi.....
Hallgrímur Guðmundsson, 28.6.2008 kl. 22:21
Grunaði mig ekki. Er ekki gamla fiat beyglan mín þarna efst á blaði. Gott ef hún var ekki 91 hestafl. Þetta er ábyggilega sami bíllinn. Nú á ég SKODA það er alvörubíll og þarf ekki í viðgerð á korters fresti eins og fiat. Örugglega verið fiat sem fann upp þjónustuhlé og veitti ekki af.
Víðir Benediktsson, 28.6.2008 kl. 22:48
Já Víðir, þetta er tilfellið, þarna er Fiat 91 hestafl efstur á blaði, það væri gaman að vita hvað það táknar, en SKODINN slær algerlega út þetta drasl, ekki spurning. Þessi massaði þarna í seinni listanum virðist vera orðinn við aldur, 48 ára, er það ekki nokkuð gamalt....
Hafsteinn Viðar Ásgeirsson, 28.6.2008 kl. 23:41
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.