Góða frétt dagsins.

Er það nú góða fréttin í dag, að hægt hafi á vexti atvinnuleysis...? Það er nú reyndar engin smásmíði á ekki stærri vinnumarkaði, að það skuli vera á sautjánda þúsund manna án atvinnu, skelfilegt mál alveg. Það sem ég kvíði mest, er að ég held að það sé mikið í pípunum ennþá, þessi ógæfa á eftir að versna, því miður.

Ég ráðlegg fólki að kíkja við á kynningu norðmanna í ráðhúsinu á morgun. Hér vantar fólk í ýmis störf og kannski aðallega iðnaðarmenn og "norar" taka vel á móti Íslendingum, svona heilt yfir. Ég hef rekist á íslendinga í allskonar störfum og þó hér sé samdráttur líka, eins og annarsstaðar, þá er þörf á fólki mikil í ýmsum greinum. Ekki síst iðnaðarmenn og réttindamenn til sjós t.d.

Sá reyndar einhversstaðar tölur um stóraukið atvinnuleysi í landinu, svo það er ekki alltaf gott að botna í hlutunum, en svona eru þeir.

Víða eru starfskjörin undarleg í okkar eyrum. Þurfti að hoppa í leigubíl smáspotta í gær og bílstjórinn fór að forvitnast um mína hagi og ég hans. Það kom á daginn að hann hafði hætt á toppskipi í uppsjávarveiðum hér til að fara í olíuiðnaðinn og sagði að ekkert jafnaðist á við það í launum, eða vinnutíma, (sem ég hélt reyndar að væri í uppsjávarveiðunum).

Það kom í ljós að hann vinnur í tvær vikur og er svo í fríi í fjórar...og þá keyrir hann leigubílinn sinn, svona eins og hann nennir, til að verða ekki vitlaus á aðgerðarleysinu...það er margt skrítið í kýrhausnum.....og undarlegir menn kettirnir....eða þannig sko.:)


mbl.is Hægir á vexti atvinnuleysis
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Hafsteinn Viðar Ásgeirsson
Hafsteinn Viðar Ásgeirsson
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 16
  • Frá upphafi: 927

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 16
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband