Guðlaugur hengdur. Og er þá sagan öll?

Nú virðast þeir sem helst tjá sig um málið vera á því, að það þurfi að víkja honum Guðlaugi og þá verði allt gott hjá þeim. Það er merkileg niðurstaða, í gær voru þeir tilbúnir til að láta duga að hengja burtfloginn formann. Þetta er ótrúlegur málatilbúnaður sértrúarsöfnuðar Davíðs. Ætli hann Kjartan garmurinn, Landsbankatengill safnaðarins hafi nú ekki eitthvað komið að málinu?

Ekki trúi ég að fólk sé tilbúið til að kaupa þessar söguskýringar, nema þá kannski "innmúraðir og innvígðir". Annars þurfa þeir engum að standa reikningsskil gerða sinna, þeir eiga þetta allt skuldlaust og kjósendurna með.


mbl.is Guðlaugur Þór hafði forgöngu um styrkina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hjartanlega sammála

Já ætli þeir haldi við kjósendur séum hálfvitar?, ætla þeir að reyna telja okkur trú um það að Guðlaugur hafa bara útvegað styrkina og ekki vitað hve háir þeir voru?

Axel Eyfjörð (IP-tala skráð) 9.4.2009 kl. 13:07

2 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Það þarf mjög einbeittan (brota)vilja til að kyngja þessum skýringum Sjálfstæðisflokksins athugasemdalaust. Geir einn var sagður ábyrgur, nú er vitað að Guðlaugur hafði aðkomu að málinu, svona munu þeir detta inn einn og einn þrátt fyrir alla viðleitni flokksins að klóra yfir s...... .

Það er útilokað annað en bókhald flokksins sé lagt fyrir einhverja maskínu hans til samþykktar, ef menn á þeim bæ vilja fylgja lögum og taka sjálfa sig alvarlega. Ef þessi 30 og 25 milljóna innlegg hafa ekki verið færð í bókhaldinu sem slík hefur því verið hagrætt, slíkt þykir víst ekki góð pólitík þegar aðrir eiga í hlut.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 9.4.2009 kl. 13:07

3 identicon

Sæll Hafsteinn. Eins og venjulega verður bakari hengdur fyrir smið, en hugsið ykkur hvaðallt þetta klúður er vatn á myllu vinstristjórnarinnar sem ætlaði að slá skjaldborg um heimilin í landinu. Allir fjölmiðlar eru fullir af fréttum af Sjálfstæðisflokknum og vandræðum þar en ekki dettur þeim í hug að krefja VG og Samfó svara um brínustu mál komandi missera.

þorleifur H. Óskarsson (IP-tala skráð) 9.4.2009 kl. 13:38

4 Smámynd: Óðinn Þórisson

Hafsteinn Sjálfstæðisflokkurinn hefur boðið Framfarahemlaflokknum&Samfó að taka stjórnarskrámálið af dagskrá Og hafa einnig boðist til að hleypa í gegnum góðum málum sem tengjast heimilum&fyrirtækjum - hversvegna samþykkir þessi minnihlutastjórn ekki þessa útréttu sáttarhönd Sjálfstæðismanna - varðandi orð Þorleifs um fjölmiðla þá því miðureru þeir handónýtir t.d Ísland í Dag á stöð 2 sem minnir meira á Séð&heyrt þátt - gjörsamlega HANDÓNÝTUR þáttur - betra að sýna stillimyndina.

Með bestu kveðju úr Kópavoginum - sjáumst í Valhöll

Óðinn Þórisson, 10.4.2009 kl. 09:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Hafsteinn Viðar Ásgeirsson
Hafsteinn Viðar Ásgeirsson
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 16
  • Frá upphafi: 927

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 16
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband