Afsökunarbeiðnin.

Hann Hreiðar Már var alveg ákveðinn í því að láta ekki illa undirbúinn Sigmar draga uppúr sér afsökunarbeiðni til handa þjóðinni. Það er að mörgu leiti skiljanlegt að drengurinn láti ekki toga uppúr sé slíkt, verandi sannfærður um að hann hafi ekkert af sér gert. Viðtalið var að mörgu leiti gott, fyrir Hreiðar, en mér fannst hann Sigmar nota illa tækifærið til að draga uppúr honum eitthvað sem máli skiptir.

Það hefði til að mynda verið áhugavert að fá frá Hreiðari hvað hann teldi fært að gera fyrir skuldara í landinu, eins og hann nefndi sjálfur, það hefði allavega verið uppbyggilegra en að hlusta á endurteknar afsökunartuggur frá æstum Sigmari.

Hann hefði líka getað spurt hann beint að því, hvort sögusagnir um eign þeirra félaga á Kaupþingi í Lux væri staðreynd?

Nei, útkoman úr þessu viðtali er að Sigmar klikkar, illa undirbúinn og æstur, en Hreiðar heldur ró sinni og kemst þokkalega frá viðtalinu.


mbl.is Annarra að biðjast afsökunar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðmundur Pétursson

Ekki auðmaður sem hafði 6 milljónir á mánuði í laun síðustu 4 ár plús bónusa.  Hmmm, Sigmar stattu þig aðeins betur í þínu starfi.

Guðmundur Pétursson, 20.8.2009 kl. 09:28

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Hafsteinn Viðar Ásgeirsson
Hafsteinn Viðar Ásgeirsson
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 33
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 33
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband