Hannes er algerlega vammlaus.

Ég varð þeirrar "hamingju" aðnjótandi að heyra viðtalið við þennan veruleikafyrrta hátekju ríkisstarfsmann og ekki hækkaði hann í áliti. Það er með algerum ólíkindum að það sé einhver fjórðungur+ þjóðarinnar sem tilbiður þennan endemis kálf. En þessari þjóð virðist bara vera ætlað að vera í skítnum, allavega verður ekki mikil breyting á meðan við tilbiðjum Holmstone og Davíð.

Það er verstur fjandinn hvað fjölmiðlafólk sýnir endalaust mikla linku við að hafa stjórn á svona blaðurskjóðum við að draga uppúr þeim svör við spurningum í stað þess að lofa þeim að rausa eithvað frá eigin brjósti, sem enginn er að fiska eftir, allt heyrst áður.


mbl.is Hinir vammlausu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: hilmar  jónsson

Þetta er alveg dásamlegt.

Svo eys hann úr viskubrunnum sínum yfir óharnaða nemendur í Háskólanum..

hilmar jónsson, 25.8.2009 kl. 13:19

2 identicon

Hannes hefur sterk áhrif á mann ,því karluglan náði að koma mér úr jafnvægi Ég tók kipp þegar ég heyrði hann segja frá því hverjir ættu í raun að biðja afsökunar.Bjóst kannski ekki við iðrun úr þessari átt.

hörður halldórsson (IP-tala skráð) 25.8.2009 kl. 13:28

3 Smámynd: Hafsteinn Viðar Ásgeirsson

Það ætti náttúrulega að gera hann útlægan úr þessari "kennslu". Ég hugsa til þess með hryllingi að vita af dýrinu við að "uppfræða" ungt fólk. Algert skaðræði. Og þó hann verði hundrað ára mun hann aldrei læra að skammast sín

Hafsteinn Viðar Ásgeirsson, 25.8.2009 kl. 13:46

4 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Þessi færsla er sannarlega ljúf og skemmtileg, þótt umfjöllunarefnið sé það hreint ekki.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 25.8.2009 kl. 15:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Hafsteinn Viðar Ásgeirsson
Hafsteinn Viðar Ásgeirsson
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 7
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 7
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband