Undarleg vinnubrögð.

Það er nú að sjá að þessir ribbaldar eigi fremur heima einhversstaðar á meðferðarstofnun heldur en í skóla. það er aldeilis ótrúlegt hvað virðist þurfa til að skólastofnun losi sig við algerlega vonlaust lið sem gengur í skrokk á samnemendum sínum. Hélt nú að svonalagað viðgengist ekki árið 2009, en það er allt til.

En hvað dvelur Þvaglegg löggu, er þetta ekki líklegt til að koma honum í fréttir?


mbl.is Börðu skólabróður með kúbeini
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hann virðist vera að mæta í vinnuna þessi þingmaður.

Og stjórnarmaður og allur pakkinn. Verst að hann tók ekki á málinu meðan hann og hans menn voru með tögl og hagldir í fjármálum landsins, þá hefði hann kannski getað kýlt á lán fyrir Byggðastofnun? En hann er algerlega það ónýti sem margir trúðu að hann væri, svo hann veldur fáum vonbrigðum. En einhverjum er nú samt að detta í hug að hann væri efnilegur formaður í flokknum, það segir nú meira um flokkinn en þingmanninn og stjórnarmanninn og allt það....?
mbl.is Gripið í tómt hjá Byggðastofnun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekki láta ykkur til hugar koma....

..að efast eitt andartak um sannleiksgildi þess sem þessi piltur segir um fótbolta. það er áratuga reynsla fyrir því að hann veit lengra sínu rauða nefi. Takið eftir, Chelsea er út úr myndinni, það hef ég fyrir satt en Liverpool hangir inni, svo mörg voru þau orð.....
mbl.is Ferguson segir titilvonir Chelsea úti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það hefur nú verið vitað lengi hélt ég.

Að meirihluti þjóðarinnar væri á móti þessum óskapnaði sem núverandi kvótakerfi er orðið. Það hefur hinsvegar vantað stjórnvöld í landið sem tilbúin væri að fara að vilja meirihluta þjóðarinnar. sem aftur kemur af því að fólk mætir aftur og aftur í kjörklefann og krossar við ofbeldisliðið. Eðlilega telur það að óhætt sé að fara að vilja braskaranna, annað geti ekki verið fyrst þeir eru kosnir æ ofaní æ.

Það eru undarlegar þverstæðurnar í þessari vesalings þjóðarsál Íslendinga.


mbl.is 61% vilja innkalla kvótann
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hann er nú enginn kjáni hann Steingrímur.

Það er hann að sýna klárlega. Það er vonandi að það nýtist honum til að "taka í horn á Bola" varðandi yfirgangsliðið hjá LÍÚ, ekki veitir nú af, eftir að þeir skálkar hafa farið með stjórn sjávarútvegsmála í landinu í ......ég bara man það ekki, það er svo langt síðan einhver með bein í nefinu eða löngun til að ráða ferðinni var í þessu ráðuneyti. "Elstu menn eru að verða minnislausir"...
mbl.is Ákvörðun um hvalveiðar stendur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bjartsýni í miðju svartagallsrausinu.

Það er ekki mikið um jákvæðar fréttir af bjartsýnisfólki þessa dagana, raunar grátlega lítið. Það er enda sjaldan betra að byrja á einhverju nýju og jákvæðu heldur en í niðursveiflu eins og nú er í gangi.

Það er vonandi að þetta gangi allt eftir, ekki veitir af jákvæðum nýjungum á landsbyggðinni. Þetta var reyndar prófað í Þorlákshöfn og eitthvað víðar hér á Suðurlandi en gekk ekki hér allavega, kannski vantaði drifkraft einstaklings fremur en opinbera sjóði til að koma málum fram, þó auðvitað þurfi stuðning við einstaklinga í svona verkefnum. Þetta verkefni nær sér vonandi á flug.


mbl.is Skrifstofuver í Vestmannaeyjum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er ekki ráð að mæta bara á þessa brunaútsölu?

Ef það er hægt að verða af tugum milljarða með því að þessir "hamsar" af fyrirtækjum lendi á brunaútsölu, hlýtur með sama hætti að vera hægt að ná þeim með því að kaupa á útsölunni, það skortir greinilega ekki fjármuni hjá skilanefnd þessari svo varla verður vandamál að borga.

Mér er hinsvegar slétt sama hvoru megin hryggjar Sjóva þessi liggur, það getur ekki verið mikið slátur eftir í því, margbúið að skuldsetja og hirða allt nýtilegt?


mbl.is Bjóða milljarða inn í Moderna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Góður liðsauki?

Þau eru ekki á flæðiskeri þarna í Samfylkingunni að vera kominn með Björn Bjarnason til að sjá útúrhlutunum hjá sér. Ég hélt nú reyndar að hann og hans fólk væri með fangið fullt, en það mé lengi á sig blómum bæta.
mbl.is Segir þagnarmúr um formennsku í Samfylkingu rofinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Magnaður Vilhjálmur.

Hann slær ekki feilhöggin á þessum síðustu og verstu og ekki spurning að hann veit hvað hann syngur. Ég hef meiri trú á honum en samanlagðri Seðlabankastjórninni að meðtöldum stjórunum og Fjármálaeftirlitinu.
mbl.is Aldrei of blönk til að hugsa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Og þykir sennilega mörgum mál til komið.

Að kerfið hætti að verja þennan glæpalýð sem vaðið hefur um í vösum fólks allt of lengi. Það kæmi mjög á óvart ef ekki væri tilefni til að taka í lurgina á þessu gripdeilda-liði. Það getur bara ekki verið að lögin séu svo alónýt að þau verndi svona drullusokkshátt.

Enn og aftur er þrýstingur Vilhjálms Bjarnasonar að skila árangri, það þarf bara miklu meira til og lögum um hlutafélög þarf að koma í siðlegt horf, svo ekki lýðist að vaða á skítugum skónum yfir minnihlutaeigendur í hlutafélögum, algerlega varnarlausa. Áfram Vilhjálmur.


mbl.is Sneri við niðurstöðu frá ríkislögreglustjóra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Hafsteinn Viðar Ásgeirsson
Hafsteinn Viðar Ásgeirsson
Mars 2025
S M Þ M F F L
            1
2 3 4 5 6 7 8
9 10 11 12 13 14 15
16 17 18 19 20 21 22
23 24 25 26 27 28 29
30 31          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.3.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 3
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 3
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband