Færsluflokkur: Dægurmál

Já, já auðvitað.

Hver vill ekki vera í titilbaráttu? Ætli þeir hafi nú ekki ætlað sér það alla tíð, ég man ekki annað. En það verður að geta, það er málið, það vantar alltaf aðeins uppá, kannski verða einhverjir aurar til að kaupa í sumar? Kannski koma ríkir Arabar sem setja í þetta einhvern skurk, veit það ekki, ég drekk ekki mjólk.
mbl.is Steven Gerrard: Í titilbaráttu á næsta tímabili
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Einhversstaðar þröngt í búi.

Það verður einhversstaðar þröngt í búi hjá bílasölum þegar líður á árið. En það má svo sem segja að þeir höfðu ekki forsendur til að draga saman í tíma, fall krónu og skyndilegur samdrátturinn hefur að einhverju leiti komið þeim í opna skjöldu, eins og fleirum.
mbl.is Óseldir bílar hrannast upp
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kemur það á óvart?

Mér finnst ekki líklegt að það komi neinum sem hefur fylgst með á liðnum árum á óvart að þessi niðurstaða skuli liggja fyrir. Það hefði verið meira en lítið undarlegt ef annað hefði orðið uppi. Auðvitað er alveg sama ásjóna á öllum einkavinavæðingum Framsóknar og Sjálfgræðis á undanförnum árum og þær verða örugglega verkefni sagnfræðinga framtíðarinnar, hvernig í veröldinni menn fengu frið til að koma þessu fram.

 


mbl.is Sala á ÍAV úrskurðuð ólögmæt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ófærð á vegum...

Ég ætla rétt að vona að þetta verði ekki mjög snjóþungt sumar.
mbl.is Ófært og stórhríð er á Steingrímsfjarðarheiði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þetta er svakaleg þróun.

Það er vandséð hvernig þeir sem eiga að vera að stjórna hér ferðinni ætla sér að ná tökum á ástandinu og ná niður verðbólgu, eins og gefnar hafa verið yfirlýsingar um. Það er ekkert að sjá úr þeirri áttinni og kannski er það ástæða þess hvernig flotkrónuræfillinn gerir sig. Nú hlýtur að vera komið að því að stjórnvöld taki á sig rögg og geri eitthvað í málunum, þetta stefnir allt lóðbeint fjandans til með þessu háttalagi.
mbl.is Krónan veiktist í dag um 1,86%
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekki til Englands?

Þá er það bara KR, nema að hann sé að setjast í helgan stein? Nei verðum við ekki að trúa því að þeir vilji nota kallinn á Englandi?
mbl.is Eiður Smári: Tímabilið líklega búið hjá mér
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nú er málið að verða virkilega alvarlegt.

Það fer að verða erfitt að trolla eftir ódýrari fiskinum með þessu olíuverði. Smáýsa í stórum upplögum á 40 kallinn pr.kg...brúttó í Bretlandi í morgun, svo það borgar ekki mikið af olíu svoleiðis fiskverð...
mbl.is Verð á olíu nálgast 124 dali tunnan
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Rijkaard virðist hafa misst alla trú á Eið.

Það er ekki nokkur vafi að stjórinn hefur ekki trú á okkar manni lengur. Ekki er gott að segja hver ástæðan er en þetta er ekki góð staða fyrir Eið Smára. Mér segir svo hugur að þetta bara versni þarna og sennilega er hann búinn að spila sínar síðustu mínútur fyrir Barcelona.

Þetta verður allt annað hjá West Ham.


mbl.is Eiður Smári útaf vegna meiðsla eftir 23 mínútur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Góð forystugrein frá Þorsteini Pálssyni í dag.

Það er allt of lítið um vitræna umræðu um hugsanlega aðild okkar að ESB og "flotkrónuræfilinn", að mér finnst. Það er helst að Jón Baldvin kryfji hlutina af þekkingu og núna síðast í Silfrinu á sunnudaginn síðasta. Í Fréttablaðinu í dag er hinsvegar góð grein eftir Þorstein Pálsson og það er óhætt að segja að hann kemur sterkur inn karlinn. Þar sem mér finnst gagn að greininni, þó ég kaupi ekki hvert orð, læt ég hana flakka hér með. En ég er viss um að greining hans varðandi sjávarútveginn inní ESB er raunhæf.

mynd

Þorsteinn Pálsson skrifar:

"Tímabundinn vandi efnahagslífsins snýst um alþjóðlega lánakreppu. Langtíma vandinn í þjóðarbúskapunum felst hins vegar í því að íslenska krónan er ekki samkeppnishæf. Þetta eru aðskilin viðfangsefni.

En tímabundni vandinn má ekki verða til þess að slegið verði á frest að leggja línur um það hvernig langtíma úrlausnarefninu verður mætt.

Óumdeilt ætti að vera að afar ríka hagsmuni þurfi að setja á vogarskálarnar til að réttlæta ósamkeppnishæfa mynt. Spurningar þar um lúta einkum að sjávarútveginum og Evrópusambandsaðild.

Þrjú atriði koma þar helst til álita. Í fyrsta lagi eru það veiðar úr stofnum innan lögsögu. Á grundvelli reglunnar um hlutfallslegan stöðugleika héldi Ísland þar óskertum veiðirétti. Árlegar ákvarðanir um heildarafla yrðu formlega á hendi Evrópusambandsins. Forsendur ákvarðana yrðu eins og áður álit íslenskra vísindamann og ráðgjöf Alþjóða hafrannsóknaráðsins.
Fiskveiðistjórnun yrði eins og nú ákveðin með lögum frá Alþingi.

Hér eftir sem hingað til yrði úthlutun veiðiheimilda alfarið á höndum íslenskra stjórnvalda. Eftirlit yrði með sama hætti og nú á hendi íslenskra stjórnvalda. Efnislega raskast því engir hagsmunir. Óhagræði væri hins vegar að því að eiga heildaraflaákvarðanir undir ráðherraráði sambandsins þó að þær skiluðu sömu niðurstöðu og einhliða ákvörðun sjávarútvegsráðherra Íslands.

Í ljósi þess að hér er ekki um að ræða sameiginlega fiskistofna væri rétt að setja fram kröfu um að innan ramma sameiginlegu fiskveiðistefnunnar yrði hafsvæðið hér sérstök stjórnunareining. Þó að slík ráðstöfun fæli hvorki í sér meiri né minni veiðirétt myndi hún draga úr óhagræði við ákvarðanatöku. Þessa tillögu má rökstyðja með skírskotun í evrópskar grundvallarreglur og fordæmi.

Í annan stað þarf að líta á veiðar úr deilistofnum og úthafsstofnum. Þær hafa mikla efnahasgslega þýðingu. Í þeim tilvikum semur Evrópusambandið fyrir aðildarlöndin. Eðlilegt er að spyrja hvort sú staða veiki íslenska hagsmuni. Að einhverju leyti gæti hagsmunagæslan orðið flóknari en í heild sýnist staðan hvorki veikjast né styrkjast.
Þriðja álitaefnið snýst um meginregluna um frjálsar fjárfestingar. Þar um höfum við ótímabundinn fyrirvara í EES-samningnum.

Sá fyrirvari hefur verið viss trygging. Margir og þar á meðal ýmsir andstæðingar Evrópusambandsins hafa hins vegar viljað losna við fjárfestingarbannið óháð spurningunni um aðild. Það felur í sér mismunun og gerir stöðu sjávarútvegsfyrirtækja þrengri á ýmsa lund. Eigi að síður er það vel rökstyðjanleg jafnræðiskrafa að halda þessum fyrirvara tímabundið meðan samkeppnisfyrirtæki í evrópskum sjávarútvegi njóta styrkja.

Hér hefur ráðstöfun afla fiskiskipa aldrei verið takmörkuð við landið eða einstök svæði. Slíkir átthagafjötrar vinna gegn hagræði markaðslögmálanna. Þó að engin rök standi til að setja reglur af þessu tagi er rétt að hafa í huga í tengslum við erlenda fjárfestingu að rétturinn til að setja þær hverfur ekki með Evrópusambandsaðild.

Af þessu má ráða að sameiginlega fiskveiðistefnan og erlend fjárfesting gætu falið í sér ákveðið óhagræði og minniháttar áhættu. Með rökum verða þessi atriði hins vegar ekki metin svo þung á vogarskálunum að þau útiloki aðild að Evrópusambandinu og samkeppnishæfu myntsamfélagi sem er sjávarútveginum ekki síður mikilvægt en öðrum atvinnugreinum. "


Hér er klárlega verið að gera eitthvað af viti.

Svo það hefði verið alveg galið að setja ekki peninga í verkefnið. Það eru ekki svo margar jákvæðar fréttir af þessum vettvangi að það hefði verið verjandi að slökkva á þessari einu jákvæðu um langan tíma, ef ekki ever. Það er ástæða til að þakka þeim sem gerðu þessa starfsemi mögulega áfram.
mbl.is Fangar snúa við blaðinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Hafsteinn Viðar Ásgeirsson
Hafsteinn Viðar Ásgeirsson
Sept. 2025
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (10.9.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 3
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 3
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband