Færsluflokkur: Dægurmál

Alveg geggjuð frétt.

Af yfirgripsmiklu kæruleysi og glannaskap. Mér er nú nær að halda, eins og raunar kemur fram hér, að það eigi ekki að vera flókið að finna dólgana og slíta af þeim bætur fyrir tjónið og jafnvel eitthvað meira.
mbl.is Drukknir ökumenn skemmdu hús
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fregnir af "Þvaglegg löggu"

Hér er frétt af máli einu sem "stjörnusýlumaðurinn Þvagleggur" startar vegna fólks sem lenti í bílslysi í umdæminu á síðastliðnu ári. Það er ekki vandi að taka undir með henni Helgu og öðrum sem tjáð hafa sig um þennan framgang, maður gæti haldið að tíma fólks væri betur varið í löggæslu og fyrirbyggjandi aðgerðir en svona fíflagang. Þetta segi ég vegna þess að ég hef nýlega gengið í gegnum svona hrylling og get fullyrt að þetta er ekki eitthvað sem fólk sem hefur lent í miklu áfalli eins og slys oft eru þarf á að halda, kannski í framhaldi af meiðslum, áfallahjálp og allskonar áföllum tengdum slysi. Mér finnst hinsvegar meira rannsóknarefni það erindi sem hann hefur með mörg þessi mál hjá dómurunum á Selfossi og finnst virkileg ástæða til að það sé skoðað. Álit mitt og traust á dómskerfinu er allavega ekki upp á marga fiska eftir þessar hremmingar, svo mikið er víst.

Hann segir hér pilturinn að þeir leggi mikið uppúr sýnilegri löggæslu og að þetta sé partur af henni, það er vandi að vera honum sammála um það. Á sama tíma hefur löggæsla verið nánast aflögð á fjölmennum stöðum í umdæminu, svo sem hér í Þorlákshöfn hvar löggæslumenn eru afar fáséðir. Fyrir daginn í gær hafði ég séð slíka hér fjórum sinnum frá áramótum, en þeir sáust hér jafn oft í gær, (það hefur sennilega verið rassía í gangi.) Og svörin ef hringt er eru stórkostleg, "það þýðir ekkert að vera að eltast við þetta því þeir eru allir horfnir um leið og við komum á svæðið", það fannst mér hinsvegar góð og fyrirbyggjandi löggæsla en þeir eru ekki á sama máli á Selfossi.

mynd
Ólafur Helgi Kjartansson.

Þórir Hall Stefánsson var á þriðjudag dæmdur í tveggja mánaða skilorðsbundið fangelsi í Héraðsdómi Suðurlands fyrir líkamsmeiðingu af gáleysi gagnvart konu sinni, með gáleysislegum akstri.

Kona Þóris, Helga Jónsdóttir, ritaði grein í Fréttablaðið í gær þar sem hún lýsti því hvernig hún reyndi að fá sýslumanninn á Selfossi, Ólaf Helga Kjartansson, til að falla frá kærunni, en án árangurs. Ekki kom fram í grein Helgu að dómur er fallinn.

Helga spyr í grein sinni hvort mismunandi sé tekið á málum á milli sýslumannsembætta.
Athugun Fréttablaðsins leiðir í ljós að mikil fjölgun hefur orðið á málum sem koma inn á borð lögreglunnar á Selfossi. Eins og sést á myndinni til hliðar voru þau 204 árið 2001, en 632 árið 2006, en nýrri tölur liggja ekki fyrir. Þessi mikla aukning er langt yfir landsmeðaltali, þar sem málum hefur fækkað á sama tíma úr 8.173 í 7.701. Ólafur tók við embætti á Selfossi í upphafi árs 2002.

Ólafur segist ekki vita hvort óeðlilega mikið sé um mál hjá embættinu á Selfossi. Hann minnir á að embættið er gríðarlega stórt; það nær frá brekkunni vestan við Litlu kaffistofuna, austur að Þjórsá og að Kerlingarfjöllum. „Hjá okkur hefur mikill metnaður verið lagður í sýnilega löggæslu og þetta segir væntanlega eitthvað um dugnað lögreglumanna. Við erum að skoða betur af hverju aukningin stafar," segir Ólafur Helgi.

Árið 2006 lauk 88,8 prósentum mála hjá lögreglustjóranum á Selfossi með ákæru, en 74,3 prósentum yfir landið allt. Ólafur Helgi segir að mál eins og Þóris séu alltaf erfið. Eftir vandlega íhugun hafi verið ákveðið að ákæra í samræmi við gildandi lög og venjur. „Það verður að gæta samræmis í því sem gert er. Þetta er því miður ekki fyrsta ákæran sem gefin er út af mér þar sem ættingjar eða maki koma að málinu," segir Ólafur.

Hann minnir á að farið hafi verið fram á vægustu refsingu. Tekið sé tillit til fjölskyldubanda „Í nútímaþjóðfélagi er almennt litið svo á að hjón séu tveir sjálfstæðir einstaklingar og það á enn frekar við þegar fólk er ekki í búskap. Menn geta svo spurt sig hvort eðlilegt sé að yfirvöld séu þannig að þau láti undan þrýstingi og einnig hvort eðlilegt sé að beita lögleg yfirvöld svona þrýstingi."
Sigurður Líndal lagaprófessor segir að sér finnist fullharkalega fram gengið í málinu. „Rétt hefði verið að leita allra leiða til að fara vægar í sakirnar."kolbeinn@frettabladid.is


Óóó, hvað er í gangi...?

Er tap á græðgisvæðingu? Hvað er í gangi? Er ekki bankapjakkurinn búinn að grenja yfir gengisskráningu í hvert sinn sem hann hefur opnað munninn í langan tíma? Nú þegar gengið fellur þá eru skuldirnar svo svakalegar að allt fer uppá rönd, það er erfitt að gera kvótaskuldurum til hæfis.
mbl.is Mikið tap á rekstri Vinnslustöðvarinnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hann veit nú sínu viti hann Wenger.

Vonandi hefur hann rétt fyrir sér í þessu. En ekkert er öruggt í þessu fyrr en síðasta leik verður lokið. Mögnuð spenna í gangi.
mbl.is Wenger spáir Man Utd titlinum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Held að enginn hafi slasað sig hér í gær.

Þrátt fyrir að bærinn væri eins og kappakstursbraut í Barcelona góðan hluta dagsins og menn á afturhjólinu hér um allt, hafa ekki komið fregnir af neinum svona óheppnum hjólamanni. En ekki varð vart við neina fulltrúa Þvagleggs löggu, enda hefði truflun frá þeim sennilega valdið slysi.
mbl.is Bifhjólamaður meiddist
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hann þekkir þetta þessi piltur.

Og það er ekki að efa að hann hefur rétt fyrir sér. Þannig að þar með verður að segja, að atvinnuöryggi Grants er ekki mjög mikið. Vonandi verður hann atvinnulaus 22. maí.
mbl.is Ranieri segir að Grant verði að vinna til að halda starfi sínu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hérlendis er enginn til að snupra þá.

Það er ekki vegna þess að það sé ekki ástæða til að gefa jakkafötunum aðeins inn hérna sem það er ekki gert af alvöru, það virðist bara enginn vera í því hlutverki. Vissulega hafa hlutirnir verið svona hérna á undanförnum árum og má segja að bankarnir hafi nánast fengið þann mannafla sem þeim hefur langað í. Auðvitað er "fleira gott en feitt ket" og fullkomlega úr takt að aðrar greinar geti ekki með nokkru móti keppt við banka um gott og efnilegt starfsfólk?
mbl.is Snuprar fjármálafyrirtæki
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Svaka leikur.

Þetta var mikil spenna og sviptingar, en úrslitin sennilega sanngjörn. til hamingju með þetta Chelsea-aðdáendur.
mbl.is Chelsea í úrslit í fyrsta sinn eftir 3:2 sigur á Liverpool
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Foreldrarnir vonandi með heimilistryggingu.

Eða einhverja óknyttatryggingu, þeir verða lengi að vinna fyrir þessu sjálfir þessir guttar. Svo er auðvitað möguleiki að flengja þá opinberlega í Hafnarfirði?
mbl.is Mikið tjón í sinubrunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Benitez hefur ekki hrapað í áliti hjá mér.

Það er alveg á tæru að Benitez fær bara prik fyrir að segja eins og er um Drogba. Vonandi að dómararnir í kvöld láti hann ekki plata sig.
mbl.is Didier Drogba: Ber ekki lengur virðingu fyrir Benítez
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Hafsteinn Viðar Ásgeirsson
Hafsteinn Viðar Ásgeirsson
Sept. 2025
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (11.9.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 3
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 3
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband