Jónas....

"Árni á Suðurlandið"
"Sjálfstæðisflokkurinn sækir fram á Suðurlandi, einkum í Eyjum, undir öruggri forustu hins lífsreynda Árna Johnsen. Fylgi flokksins er 40% í kjördæminu og 48% í Eyjum. Þetta meginfylgi er ekki Árna Mathiesen að þakka, heldur sjálfu náttúruaflinu, sem frægast varð af útistöðum við lög og rétt. Flokkurinn verður áfram í stjórn eftir kosningar. Þegar hann velur sér ráðherraembætti í næstu ríkisstjórn, getur hann tæpast neitað mesta sigurvegara sínum um ráðherraembætti. Því verður stutt og brött sigurbrautin frá Kvíabryggju í stjórnarráðið að þessu sinni."

......Kristjánsson fyrrverandi ritstjóri, skrifar þennan pistil á heimasíðu sína í vikunni í tilefni skoðanakönnunar sem kynnt var sama dag. Það er hægt að taka undir þetta og hvernig sem fólk metur hlutina að öðru leiti þá er alveg ljóst að það er ekki "pappakassinn" úr Hafnarfirði sem er að gefa þessa niðurstöðu, það er Árni Johnsen sem aftur gefur okkur það að líklegt er að það verði tveir ráðherrar úr Suðurkjördæmi Sjálfstæðisflokks, Johnsen og Gapuxinn. Johnsen er ekki ver að því kominn en aðrir sem til greina koma og sennilega betur, ef eitthvað er. Það verður vart við hann þegar hann tekur sig til.....eins og flestir þekkja. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Hafsteinn Viðar Ásgeirsson
Hafsteinn Viðar Ásgeirsson
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 10
  • Frá upphafi: 936

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 10
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband