Það er nú ekki undarlegt,

þó tekist hafi verið á um þetta mál í þingflokknum. Þar hafa skoðanir væntanlega verið jafnmargar og fundarmenn. En athyglisvert er að lesa forystugrein Mogga í morgun, hvar reglulega skemmtilega er tekið í lurgina á LÍÚ fyrir þeirra tilskrif um málið frá gærdeginum. Ekki er síður áhugavert að sjá hann taka þar hressilega undir með mér og mjög mörgum öðrum, sem hafa áfellst samtök sjómanna fyrir aumingjaskap við að verjast þessu galvitlausa kvótakerfi, þeir hefðu átt að geta séð lengra. Hvet alla til að lesa þessa grein a.m.k. tvisvar.

Og ekki minnkar undirlægjuhátturinn hjá sjómannaforystunni eftir því sem tíminn líður, eins og sjá má af hvernig þeir láta stórútgerðirnar labba yfir hagsmuni sjómanna varðandi ráðstöfun og verðlagningu aflans, ekkert lát er þar á. Koma svo gargandi, eins og liðleskja Samherja, Konráð úr Eyjafirði í gær og heimta ríkisstyrk ef útgerðin fái slíkan. Það örlar ekki á að hann telji minnkandi framboð af fiski eiga að hækka verðið, eins og allir ættu að geta séð og þar komi hluti þessarar skerðingar til baka? Auðvitað sjá allir, að svona samdráttur kostar að einhver skip verða ekki á sjó, en sem betur fer er næg vinna í landinu.


mbl.is Langar og harðar umræður í þingflokki Sjálfstæðisflokks
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Hafsteinn Viðar Ásgeirsson
Hafsteinn Viðar Ásgeirsson
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 26
  • Frá upphafi: 1009

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 26
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband