Hellisheiði lokuð, getur það verið?

Það verður að segjast eins og er, að það er oftar en ekki ótrúlegt að fylgjast með hvað Vegagerðin leggur mikið í að halda opinni Hellisheiði. Þarna eru bundin tækin oftast í mun verra veðri og meira fannfergi en í Þrengslum og þau aftur á móti, fyrir bragðið, látin safna upp bílum og vandræðum meðan barist er um austur á Hellisheiði. Þegar menn gefast svo upp á Heiðinni þá eru þar næg verkefni fyrir björgunarsveitir og sama sagan í Þrengslum og ekki hægt að koma tækjunum að þar.

Akkurat svona var staðan á föstudagsmorgun Hellisheiði að verða ófær og ófært um Þrengsli, sem ég fór seint um kvöldið og svo aftur undir hádegi, þegar tekist hafði að hreinsa úr þeim bílana, snjór var þar sáralítill. Hellisheiði þá lokuð og allar götur síðan, þangað til í gær, að með gríðarlegri fyrirhöfn er hún opnuð, til að verða lokað nokkrum tímum síðar, í næstu fyrirséðu brælu.

Það er að vísu þægilegra að setja útá fyrirkomulagið heima í stofu en að vera á staðnum, en þetta er samt eitthvað sem allir sem eru á þessum vegum frá degi til dags, eru að horfa uppá og virðist mega vinna með öðrum og öruggari hætti. 


mbl.is Hellisheiði lokuð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Hafsteinn Viðar Ásgeirsson
Hafsteinn Viðar Ásgeirsson
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.5.): 3
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 25
  • Frá upphafi: 1006

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 25
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband