21.5.2008 | 21:44
Held það sé ekki hægt að hafa meiri spennu í fótboltaleik.
En það er örugglega sárt eins og sjá mátti á fyrirliðanum Terry að tapa leiknum með þessum hætti. Leikurinn var köflóttur og bæði lið áttu sína spretti en að sjálfsögðu fannst mér niðurstaðan sanngjörn.
Man. Utd Evrópumeistari | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Færsluflokkar
Bloggvinir
- baldurkr
- hallgrimurg
- solir
- jakobk
- gretarro
- sailor
- hallibjarna
- framtid
- sisshildur
- king
- siggith
- start
- helgigunnars
- villialli
- himmalingur
- drum
- gisgis
- hallidori
- xfakureyri
- ferskur
- gisliivars
- johnnybravo
- peturorri
- baldvinj
- bjarnihardar
- gudmbjo
- gudni-is
- bleikaeldingin
- fruheimsmeistari
- gudrunmagnea
- gustav
- reynzi
- zeriaph
- gattin
- seinars
- siggisig
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Chelsea voru nú töluvert betri í leiknum sjálfum. Man Utd voru á hælunum í 70 mínútur. Algerlega hlutlaust mat.
Eitt er samt alveg á hreinu: Ronaldo þolir ekki pressu.
Frábær leikur og stórkostlegur sigur fyrir ensku knattspyrnuna.
Ólafur Björnsson, 21.5.2008 kl. 21:59
Vorum við ekki að horfa á sama leikinn? Þeir áttu slaka kafla í leiknum en 70 mínútur er nú alveg útí loftið finnst mér og tölfræðin yfir leikinn staðfestir það tel ég uppá.
En leikurinn var fín skemmtun og rosalega spennandi..
Hafsteinn Viðar Ásgeirsson, 21.5.2008 kl. 22:05
Þetta var öruggt frá upphafi. Meira grínið í Ronaldo.
Víðir Benediktsson, 21.5.2008 kl. 22:10
Til lukku félagi ég vissi þetta á undan þér....
Hallgrímur Guðmundsson, 21.5.2008 kl. 22:14
Takk, takk.. ég var orðinn eins og Abramovich, gat varla horft á spyrnurnar. Ronaldo átti helvíti bágt meðan ekki var ljóst að þetta hefðist. Maður hefur séð hann taka einmitt svona spyrnur og ná með þessu lagi að koma markverðinum úr jafnvægi, en Check lét bara ekki plata sig.
Hafsteinn Viðar Ásgeirsson, 21.5.2008 kl. 22:34
Meistaraheppni er alþekkt fyrirbrigði... þannig var það núna. - Mér fannst Chelsea eiga betri leik en hafði samt alltaf á tilfinningunni að United myndi vinna....skot í stöng,,,,þverslá....ekkert gekk....dómarinn að sleppa augljósum hornspyrnum...os.frv... en til hamingju gæskur....mörkin telja...áfram Arsenal. - Nú snúum við okkur að fótboltanum hérna heima...Áfram Skagamenn!! - kveðja Halli.
Haraldur Bjarnason, 21.5.2008 kl. 22:51
Chelsea átti vissulega góða spretti, ekki spurning og takk fyrir.
Ég er sammál með Skagamennina, hef haldið með þeim í 40 ár eða meira og nú finnst mér þeir til alls líklegir...
Hafsteinn Viðar Ásgeirsson, 21.5.2008 kl. 23:03
Auðvitað er hægt að hafa meiri spennu í fótboltaleik, ISTANBUL 2005!!
Annars frábær fótboltaleikur, ég verð að segja að Drogba átti þetta skilið, hann er skúrkurinn að mínu mati. Hver veit hvað hefði gerst ef (alltaf þetta ef) hann hefði ekki fengið rautt.
Þráinn (IP-tala skráð) 21.5.2008 kl. 23:16
Þetta var jafn og skemmtilegur leikur en þessi svokallaða meistaraheppni var utd og því segi ég til hamingju með Evrópumeistaratitilinn Hafsteinn.
Ég vorkenni Terry en svona er nú boltinn
Óðinn Þórisson, 22.5.2008 kl. 08:16
Takk fyrir það Óðinn, þessi leikur verður lengi í minnum hafður.
Já Terry karlinn verður vonandi ekki lengi að jafna sig á þessu en þetta var rosalega sárt fyrir hann, hann var sjálfsagt að kenna sér um, en svona gerast kaupin...
Hafsteinn Viðar Ásgeirsson, 22.5.2008 kl. 08:27
þessi leikur var frábær ég veit hvað ég stökk oft upp úr stólnum og hellti kaffinu og ég veit ekki hvað gekk ekki á þvílík spenna,þvílíkt fjör. Með betri leikjum sem ég hef séð.Roman vinur minn og félagi var held ég jafn spenntur og ég.Til hamingju M.U.T.D menn vona að við sjáum jafn skemmtilega leiki á næsta ári.
Davíð Þorvaldur Magnússon, 22.5.2008 kl. 18:43
Nei Árni minn, sem betur fer vann betra liðið. Það er ekki alltaf þannig, því miður.
Hafsteinn Viðar Ásgeirsson, 23.5.2008 kl. 00:58
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.