Hallgrímur Helgason.

Það er hreint með ólíkindum hvað þessum dreng ratast mikið af gullkornum og sannleika á blað. Hver snilldargreinin af annari hafa komið á undanförnum vikum og þær ættu allar að vera skyldulesning, hver snilldin af annari. Í gær kom ein sem enginn má láta framhjá sér fara og segir allt sem segja þarf um ástandið í gjaldeyrismálunum.
Hann er svo sem ekki einn um að hafa uppi harða gagnrýni á flotkrónuræfilinn þessa dagana og hún kemur úr öllum áttum, allt niður í stuttbuxnadeildirnar, en forsætis og Davíð vilja "sveigjanleikann" framar öllu....nema kannski dollar...????
En hér birti ég greinina eins og hún kom í Fréttablaðinu í gær.
Verðstofa Íslands
"Sumarið er tíminn. Þá hringir maður í Húsasmiðjuna og pantar glugga í sumarhúsið. Ellefu stykki af tvöföldu gleri og tvær hurðir að auki, allt framleitt í faglegri smiðju í Eistlandi. Verð gefið upp í krónum en reiknað í evrum. "Þetta er náttúrlega 30% dýrara nú en í fyrrasumar," höfðu kunnugir varað mig við. En ég er grænn í gluggamálum og því sáttur við upphæðina. Þá var hins vegar komið að flotáhrifum íslensku krónunnar.

Mér snerist hugur varðandi lögun eins gluggans. Því þurfti að útbúa nýja pöntun. Og henni fylgdi nýtt verð. Þar sem krónan hafði fallið daginn áður var nýja verðið 90.000 krónum hærra. Af tilviljun mölluðu viðskiptafréttir í útvarpi á borði Húsasmiðjumanns. Einhver Benderinn sagði allt benda til þess að krónan myndi "styrkjast þegar líða tekur á daginn". Ég gerði mér upp frekari vandamál varðandi opnanlegu fögin og eftir að hafa hlustað vel á Morgunkorn Glitnis daginn eftir mætti ég í Húsasmiðjuna með nýja pöntun. Og fékk nýtt verð. Verð dagsins var 40.000 krónum lægra en gærdagsverð sem var 90.000 krónum hærra en fyrradagsverð. Jæja, jæja. Ég ákvað að kýla á þetta. En þá fékk ég það svar að "endanlegt verð" væri miðað við "afhendingardag". Samkvæmt nýjustu áætlun eiga gluggarnir að lenda í lok júlí. Frá því að pöntun fór í loftið hefur krónan fallið á hverjum degi.

Þegar tilveran snerist um dagróðra sættu menn lagi til að komast út úr brimgarðinum. Í flotkrónulandinu á maður ekkert val. Allt upp á von og óvon.

Sjómaður fræddi mig nýverið um sjómannslíf okkar daga. Það snýst ekki lengur bara um afla, veður og enska boltann. Nú hlusta sjómenn jafn spenntir á verðfréttir og veðurfréttir. Því aflaverðmætið miðast við evrur og hluturinn hásetans því jafn fljótandi og krónan. "Á leiðinni inn úr síðasta túr hækkaði verðmæti aflans um tíu milljónir. Bara á leiðinni inn fjörðinn. Verst að helvítið skuli ekki vera lengri."

Manni verður hugsað til þeirra sem véla með alvöru upphæðir, fólks sem pantar ekki bara glugga í eigin hús heldur reisir heilu blokkirnar, borgar laun og tekur milljónalán. Hvernig getur það sætt sig við að vinna frá morgni til kvölds með þessu skringilega verkfæri sem þjóðarmyntin er orðin? Króna að morgni er hálf að kvöldi …

Það má líkja þessu við fótboltaleik þar sem boltinn breytir sífellt um lögun. Í miðri fyrirgjöf er hann allt í einu orðinn að körfubolta. En þegar útsparkið er tekið er hann á stærð við tennisbolta. Aðeins eitt er öruggt: Í síðari hálfleik er boltinn orðinn á stærð við golfkúlu og endar svo sem hagl í uppbótartíma.

Það er þessi sveigjanleiki sem forsætisráðherra var að dásama í London í vikunni. Er Geir H. Haarde grínisti?

Daginn eftir bætti hann um betur: Ef kasta ætti krónunni væri dollar skárri kostur en evra. Hér talaði ekki viagra-bryðjandi bjórvembillinn sem kemur reglulega fram á netabol í símatímanum á Útvarpi Sögu, heldur forsætisráðherra Íslands. Hvers konar framtíðarsýn felst í því að ætla að senda barnabörnin út í búð með rakaþvældan dollaraseðil í vasa? Hvar væri slíkur málflutningur boðlegur? Á Cayman-eyjum kannski. En ekki Íslandi.

Á dollara og evru er talsverður munur. Evra er sameiginlegt myntkerfi sjálfstæðra ríkja. Dollari er gjaldmiðill eins lands. Munurinn á því að taka upp dal eða evru jafngildir muninum á því að selja sig og gifta sig.

Forsætisráðherra getur ekki leyft sér að tala eins og símakarl á Sögu. Við þurfum ekki meira dollaragrín heldur tilfinningu fyrir því að ráðamenn okkar hafi einhver ráð. Eins og staðan er nú virðist enginn þeirra geta haft áhrif á gengi krónunnar. Hið fljótandi gengi fylgir engu nema sjávarföllum. Og þótt sjómennskan sé Íslendingum kær er kannski full langt gengið að miða allt okkar líf við flóð og fjöru: Brauðið á borðinu, mjólkin í ísskápnum, innistæðan í bankanum: Allt minnkar það og stækkar eftir stöðu sjávar.

Ef ríkisstjórnin hefur engar hugmyndir aðrar en að halda dauðahaldi í þá skoppandi bauju sem krónan er orðin ætti hún í það minnsta að stofna Verðstofu Íslands, reisa henni hús við hlið Veðurstofunnar og láta útvarpa þaðan verðspá og verðfréttum oft á dag. Það minnsta sem flotkrónustjórnin getur gert er að segja okkur á tveggja tíma fresti hve miklu við höfum tapað. "Bandaríkjadalur, 82 krónur og 50 aurar, hækkandi, eftirspurn ágæt. Evra, 131 króna …" "


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Víðir Benediktsson

Pistillinn er skemmtilegur en ég er ekki alveg sammála Hallgrími varðandi dollarann. Ef það er staðreynd að íslenska krónan er ónýt hlýtur dollari að koma til greina rétt eins og evra. Ef ekki næst samstaða um að taka upp evru hlýtur dollari að vera næsti kostur.

Það skal vera betra að taka upp dollar en halda áfram með ónýta krónu. Það er allavega allt betra en gera ekki neitt. Hallgrímur veit líka betur þegar hann segir að dollari sé mynt eins lands.

Dollari er sameiginleg mynt 50 sjálfstæðra ríkja sem hafa meira að segja um sín innri mál og löggjöf en ríki innan ESB. Þó utanríkisstefna Bandaríkja sé aðeins ein sem og íþróttalandslið, þá geta lög milli ríkja verið gjörólík.

Annars er þetta að miklu leiti mjög svipað. Alríkis dómstóll í BNA er eins og Evrópudómstóll. FBI starfar svipað og EUROPOL  BNA hefur forseta og það er leynt og ljóst stefnt að því innan ESB Nú þegar er til Evrópuþing sem kosið er til innan sambandsins. Það er ekki allur munur á. 

Þetta þarf ekkert endilega að vera alvitlaust hjá Geir. 

Víðir Benediktsson, 29.6.2008 kl. 12:08

2 Smámynd: Hafsteinn Viðar Ásgeirsson

Ég tek undir með þér Víðir með að dollar er örugglega skárri kostur en að gera ekki neitt. Það er líka rétt, að dollar er víðar notaður í viðskiptum en í BNA m.a. er auðvitað allt olíuverð miðað við dollar.

Við erum hinsvegar Evrópuþjóð með stærstan hluta viðskipta okkar í evru þannig að það tel ég vera ástæðu þess að flestir horfa til Evrópu og ég er sammála því, en það tekur tíma að laga sig að henni, það er ekki að ske á morgun.

Hafsteinn Viðar Ásgeirsson, 29.6.2008 kl. 12:37

3 Smámynd: Jóhann Elíasson

Jú þetta er nokkurn veginn alvitlaust hjá Geir.  Munurinn er sá að við þurfum að ganga í ESB, til að taka upp evruna og þá gengst ESB í ábyrgð fyrir þeim fjárhagsskuldbyndingum sem við tökum á okkur en okkur stendur EKKI til boða að ganga inn í Bandaríkin til þess að taka upp dollar og þar af leiðandi yrði dollarinn og er álíka "stöðugur" gjaldmiðill og krónan sem sagt að ávinningurinn væri enginn við að taka upp dollar og það sem verra væri við myndum ekki einu sinni losna við Davíð.

Jóhann Elíasson, 29.6.2008 kl. 15:10

4 Smámynd: Víðir Benediktsson

Fyrirgefðu Jóhann en ég er ekki alveg að ná þessu hjá þér. Skil ekki hvernig ESB  tekur ábyrgð á fjárhagsskuldbindingum  einstakra aðildarríkja, hef aldrei séð það gerast. Seðlabanki Evrópu stendur hins vegar vörð um myntina rétt eins og bandaríski seðlabankinn geri gagnvart dollar. Dollarinn hefur það fram yfir að hann er meira notaður í alþjóðaviðskiptum og þess vegna eru fleiri þjóðir en BNA sem reyna standa vörð um hann. T.d. Japanir og Kínverjar. Það er ekki svo langt síðan evran féll um 30% á þess að nokkur fengi að gert. Þessu virðast menn bara vera búnir að gleyma.

Víðir Benediktsson, 29.6.2008 kl. 17:25

5 Smámynd: Jóhann Elíasson

Ef fullgildur meðlimur í ESB, tekur upp evru, þá er ESB um leið orðið ábyrgt fyrir fjármálum viðkomandi ríkis, þótt dollarinn sé notaður í alþjóðaviðskiptum (það er að segja skráningin) þá tekur seðlabanki BNA ekki neina ábyrgð á þeim viðskiptum.  Það er ekki rétt að fleiri ríki en Bandaríkin standi vörð um dollar.  Það er ekki von að þú hafir séð það gerast að ESB taki ábyrgð á fjármálum aðildarríkis sem hefur tekið upp evru, því ekki hefur komið til þess ennþá en þetta ákvæði er að finna í sáttmálanum um sameiginlegan Evrópskan gjaldmiðil, en samskonar ákvæði er einnig að finna í lögum um seðlabanka BNA og er þar alveg skýrt ákvæði þess efnis að til þess að seðlabanki BNA sé skuldbundinn til að ábyrgjast "dollar" viðkomandi lands eða ríkis, verði viðkomandi að vera í BNA.  Japanir og Kína eru með sinn eigin gjaldmiðil og viðskipti þeirra við BNA hafa farið minnkandi undanfarin ár og því minnkar vægi dollars óðfluga þar. 

Jóhann Elíasson, 29.6.2008 kl. 18:28

6 Smámynd: Víðir Benediktsson

Kínverjar og Japanir hafa engum skyldum að gegna gagnvart dollar en vegna vægis hans og markaðshagsmuna Asíu í BNA hafa þeir oftar en ekki keypt til sín dollar til að verja hann falli. Það var þetta sem ég átti við þegar ég sagði að fleiri þjóðir en BNA stæðu vörð um dollar. Kínverjar sitja á stórum dollarasjóðum og kæra sig eflaust lítt um að hann falli mikið.

Víðir Benediktsson, 29.6.2008 kl. 19:47

7 Smámynd: Jóhann Elíasson

Eins og ég sagði áðan þá fer vægi dollars í viðskiptum Kínverja og Japana minnkandi og eins og er með alla fjármuni þá vilja menn ekki að þeir tapist, en minn punktur er sá að Kínverjar og Japanir leggja ekki eins hart að sér við að verja dollar núna eins og fyrir nokkrum árum.

Jóhann Elíasson, 29.6.2008 kl. 20:53

8 Smámynd: Sigþrúður Harðardóttir

Rétt hjá þér Haddi, Hallgrímur er snillingur. Það er unun að lesa alla hans texta og í kaupbæti er ég oftast sammála honum. Og þessi pistill er frábær.

Sigþrúður Harðardóttir, 30.6.2008 kl. 13:03

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Hafsteinn Viðar Ásgeirsson
Hafsteinn Viðar Ásgeirsson
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 26
  • Frá upphafi: 1009

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 26
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband