Vill fá krónuna í frjálst fall.

Það er engum blöðum um það að fletta, maðurinn vill að flotkrónuræfillinn fari áfram niður í frjálsu falli. Ef það er þannig að menn telji vaxtahækkun einu vörnina gegn slíkri uppákomu, er ekki hægt að draga aðrar ályktanir af ummælunum.

Og svo vill hann meiri kvóta, þar kom að því að Líú hætti að mæra Hafró og allt það þvaður sem þaðan kemur. En varla er það nú trúverðugt hjá Líú, að trúa einn daginn öllu sem frá Hafró kemur, en ekki þann næsta.


mbl.is LÍÚ óskar eftir meiri kvóta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Víðir Benediktsson

LÍÚ trúir því sem þeim hentar að trúa hverju sinni.

Víðir Benediktsson, 31.10.2008 kl. 00:05

2 Smámynd: Hafsteinn Viðar Ásgeirsson

Já þetta er skondin hjörð...og þó kannski ekki, það er auðvitað eðlilegt að þeir sem hagsmunasamtök tali bara út frá veskinu sínu, það er hinsvegar ekki eðlilegt að þeir ráði öllu sem þeir vilja ráða við stjórn landsins varðandi auðlindanýtingu og peningamál t.d.

Hafsteinn Viðar Ásgeirsson, 31.10.2008 kl. 00:31

3 Smámynd: haraldurhar

  Hafsteinn þú veist að til eru sjávarútvegsfyrirtæki í dag er fara lóðrétt á hausinn ef gengið styrkist ekki á næstu vikum.  Það er 30 milljarða tap á gjaldeyrisstöðum útgerðarinnar í dag, þeir veðjuðu á styrkingu kr.  Hafa sumir trúað á gjaldeyrisspár Davíðs  gjaldeyrisspekulants.

haraldurhar, 3.11.2008 kl. 01:56

4 Smámynd: Hafsteinn Viðar Ásgeirsson

Já Haraldur, ég held að þetta sé ljótur pakki víða og allt of margir sem hafa trúað á Davíð, bæði í þeim málum og fleirum, allt of margir, því miður.

Hafsteinn Viðar Ásgeirsson, 3.11.2008 kl. 05:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Hafsteinn Viðar Ásgeirsson
Hafsteinn Viðar Ásgeirsson
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (4.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 22
  • Frá upphafi: 951

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 22
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband