Það geta allir verið sammála um það.

En nú er það búið, í bili að minnsta kosti. Chelski lauk þeirri göngu og vonandi gera mínir menn engin mistök í dag.

En það hefur verið gaman að fylgjast með hvernig Hullarar hafa spilað sig í gegnum byrjunina í úrvalsdeildinni.


mbl.is Ferguson: Ótrúlegt gengi hjá Hull
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Víðir Benediktsson

Það má alltaf detta í það með Hullurum. Þeir eru fínir í því og ótrúlega skemmtilegir. Hér talar maður með reynslu.

Víðir Benediktsson, 1.11.2008 kl. 11:27

2 Smámynd: Hafsteinn Viðar Ásgeirsson

Mér finnst ég nú alltaf meira á heimavelli Víðir í Grimsby, enda vorum við alltaf þar með þennan blandaða bátafisk, skarkola og svona sem fáir kaupendur eru að í Hull. Svo við drukkum meira með þeim "Yellow Bellys" en "Yorky Bastards".... 

En þó skömm sé frá að segja, hef ég ekki farið á leik á nýja vellinum þarna í Hull. Hef nokkrum sinnum fari í Grimsby, (reyndar er völlurinn í Cleethorpe, enda Grimsby eina liðið sem er með heimavöllinn í öðrum bæ) en það er ekkert gaman að fara þar lengur, þeir geta ekkert núna.

Hafsteinn Viðar Ásgeirsson, 1.11.2008 kl. 12:33

3 Smámynd: Víðir Benediktsson

Kannski er þetta allt breytt. Það er orðið ansi langt síðan ég kom þarna síðast. Reyndar fannst mér langskemmtilegast að sigla á Fleetwood.

Víðir Benediktsson, 1.11.2008 kl. 12:57

4 Smámynd: Hafsteinn Viðar Ásgeirsson

Já Fleetwood var ágætur staður. Ég var þar mikið frá '79-'82 og við vorum á leið þangað í slipp, m.a. sumarið '82 þegar löndunarfélagið fór á hausinn og þá urðum við að fara á austurströndina og lentum  til Grimsby. Fórum svo einn túr til Fleetwood í janúar '83, en þá voru menn að reyna að koma hlutunum í gang þarna aftur, en það bara virkaði ekki og ég held enginn hafi farið þangað síðan með fisk frá Íslandi, bara keyrt yfir frá austurströndinni.

En ég á þarna nokkra kunningja og hef farið að kíkja á þá nokkrum sinnum. allt mjög svipað og fyrrum.

Hafsteinn Viðar Ásgeirsson, 1.11.2008 kl. 17:54

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Hafsteinn Viðar Ásgeirsson
Hafsteinn Viðar Ásgeirsson
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (8.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 10
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 9
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband