Hann Dagur er gríðarlega öflugur.

Framtíðar leiðtogi, ekki nokkur vafi. Það er hinsvegar Árni líka svo valið hefur ekki verið auðvelt, en það hefur tekist vel til. Það er örugglega rétt mat líka, að það sé heppilegt að vera með mann úr sveitarstjórnarpólitíkinni þarna í forystu, verandi með kosningar á þeim vettvangi að ári. Svo það er ástæða til að óska Samfylkingunni til hamingju með niðurstöðuna, þetta er efnilegt lið sem talar mannamál.


mbl.is Tengir ríki og sveitastjórn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Óðinn Þórisson

Sæll Hafsteinn, ég lofa því að tala ekki um liv-utd leikinn

en
þú ert ánægður með Dag blaðurskjóðu 

Hann vill fara beint í esb eftir kosningar - með hverjum ?

Þeir verða að vera tilbúinir að setja þetta sem oddamál í stjórnarmyndunarviðræðum

taktu eftir þeir munu EKKI gera það því þannig flokkur er hann EKKI

Og svo

Hvað hefur hann afrekað

Kanski þetta helst - 100 daga falskan kvartett sem hann stjórnaði Og sprakk í loft upp Og ekki tókst einu sinni að gera málefnasamning - 

En þetta truflar mig meira hversvegna ef Framfarahemlaflokkurinn Og Samfó elska hvorn annan svona mikið - jú hversvegna sameinast þeir ekki - ég er sérstakur áhugamaður um það að svo verði

Með bestu kveðju úr Kópavoginum.
 

Óðinn Þórisson, 29.3.2009 kl. 09:28

2 Smámynd: Hafsteinn Viðar Ásgeirsson

...þakka þér fyrir það Óðinn, það er fallega gert og þér líkt, að vera ekki mikið að nudda salti í sárin varðandi þennan leik, sem allir vilja gleyma sem fyrst...

En varðandi hann Dag, þá er hann auðvitað bara að byrja sinn feril í þessum drulluslag og virðingarvert að hann skuli vilja gefa sig í hann. Ég ítreka það hinsvegar, að mér finnst strákurinn koma vel fyrir, vera mjög vel máli farinn og hafa oft skynsamlegar skoðanir á hlutunum. Það sem mér finnst líka gefa mér nokkra vissu um að hann sé efnilegur, er hvað ýmsir íhaldspjakkar tala illa um hann og virðast hafa af honum einhvern ótta, það er gott signal um að hann sé nothæfur...

Með kveðju úr Breiðholtinu, að þessu sinni.

Hafsteinn Viðar Ásgeirsson, 29.3.2009 kl. 09:41

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Hafsteinn Viðar Ásgeirsson
Hafsteinn Viðar Ásgeirsson
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (2.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 20
  • Frá upphafi: 947

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 20
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband