Glæsilegt.

Til hamingju með árangurinn af þrjóskunni Kristján Loftsson & Co.
mbl.is Fyrstu langreyðarnar í land
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Segðu, eitthvað það heimskulegasta sem tekið hefur verið upp á lengi. Að veiða dýr sem enginn étur og kaupir og skaða orðstí landsins í leiðinni enn meira en orðið er. Sumum er ekki viðbjargandi...kv

Eiki S. (IP-tala skráð) 19.6.2009 kl. 08:09

2 identicon

Eiki, það vill svo til að hvalkjöt er herramannsmatur og þrátt fyrir að sumir láti glepjast af Greenpeace vitleysunni þá er markaður fyrir hvalkjöt.

Það eru alltaf sögusagnir sem segja að það kaupi þetta enginn en við skulum bara bíða og sjá hvernig fer. Þó svo að einhverjir gúrkuelskandi vitleysingar blaðri um að orðstír landsins þá gerir það ekkert til. Það er líka landinu til skammar að láta hvalina éta sig útá gaddinn af því að við veidum fiskinn í samkeppni við hvalinn, sem étur margfalt það sem við veiðum.

Vilmundur Árnason (IP-tala skráð) 19.6.2009 kl. 08:33

3 identicon

Ekkert annað en bjánalegt að veiða þessar skepnur "af því bara", ekki eins og við getum selt þetta á erlendum mörkuðum né hér innanlands af einhverju ráði.

En auðvitað slær þetta í gegn hjá anti-ESB, anti- Útlendinga, anti- Israel, anti-Ríkisstjórnar, anti-Icesave, anti-Vinnu-"Við borgum ekki"-Fullveldis-Heimssýnar liðinu hér á bloggheimum mbl.is.

Þetta er enn einn liðurinn í því að einangra Ísland frá umheiminum og senda okkur rakleiðis inn í torfbæinn aftur. Ef það er það sem fólk vill þá er þetta gott mál.

Kv. Sigmar

"Glöggt er gests augað"

Búið erlendis í 20 ár og stefni í það að bæta nokkrum við.

Sigmar Sigmars (IP-tala skráð) 19.6.2009 kl. 09:38

4 identicon

Sigmar sagði það sem ég vildi sagt hafa.Bý sjálfur erlendis og hygg ekki á endurkomu.

Það að hvalirnir éti okkur út á gaddinn er mýta sem komið var af stað af Loftssyni og álíka fortíðarrómantíkerum. Engin vísindaleg rök styðja það. Hví var fiskurinn ekki búinn fyrir landnám? Þá voru hér miklu fleiri hvalir. Vitleysan er ekki öll eins.

Hef lítið álit á gúrkum og Greenpeace og sýnir reyndar barnaskapinn í hvalveiðisinnum að spyrða manni saman við önnur eins öfgasamtök (þeir verandi ein slík sjálfir) af því maður efast réttilega um tilgang veiðanna.

Þetta er einfaldlega þjóðhagslega óhagkvæmt og glapræði ef haft er í huga að þetta kostar okkur mun meira en það færir okkur.

Hef borðað hval og finnst hann góður. En það réttlætir svo sannarlega ekki veiðar. Og bíðiði bara. Þetta kjöt mun enginn kaupa nema íslenskur sértrúarhópur. Á móti töpum við því litla áliti sem við eigum eftir. Er það þess virði? Að sjálfsögðu segir K. Loftsson. Verði honum að því. Kv..

Eiki S. (IP-tala skráð) 19.6.2009 kl. 10:03

5 Smámynd: Kristján P. Gudmundsson

Eiki, ertu ekki full svartsýnn ? Nýlega var sýnd í sjónvarpinu heimildarmynd um ástand jarðarinnar. Kenndi þar margra grasa og m.a. fjallað um vatnsskortinn í heiminum. Fram kom í myndinni, að það þarf 20 þúsund lítra af vatni til að framleiða eitt kíló af nautakjöti !

Heimurinn vill grillkjöt, vesturlönd t.d. Bretland flytur inn feiknin öll af kjöti, en framleiða það ekki í eigin landi. Hvers vegna rækta þeir ekki fleiri nautgripi heima fyrir ? Svarið er, að Bretar hafa ekki nóg vatn til þess ! Bretar hafa flutt inn kjöt frá öðrum heimálfum um áratuga skeið, einkum frá Afríku,Asíu, S-og N- Ameríku og víðar. Þeir hafa verið til þessa neyddir. greyin !

Hvað er til ráða fyrir Breta og önnur Vesturlönd, nær svo kölluð þróunarlönd hafa ekkert kjöt lengur aflögu, vegna þess, að íbúar þessarra landa borða sitt kjöt sjálfir ?

Ég álít, að við Íslendingar ásamt Japönum og Norðmönnum eigum að vísa þeim þjóðum, sem andskotast mest í okkur út af hvalveiðum, veginn út úr þeim vanda, sem við blasir. Við eigum að hundsa áróður glæpamanna á borð við GREENPEACE og halda okkar striki ásamt vinum okkar í Japan og Noregi.

Áfram með sjálfbærar hvalveiðar !

Með kveðju, KPG.

Kristján P. Gudmundsson, 19.6.2009 kl. 20:07

6 Smámynd: Hafsteinn Viðar Ásgeirsson

Það er eins og við var að búast, að menn skiptast í tvö horn með og á móti Hvalveiðum. Auðvitað stendur meirihluti fiskveiðiþjóðarinnar að baki Kristjáni Loftssyni, þó manni finnist stundum vera langt milli þeirra sem lifa af sjónum og hinna, þá gerir fólk sér samt grein fyrir því að Hvalinn verður að veiða, rétt eins og aðrar skepnur sem við þurfum að deyða til að hafa í okkur og halda jafnvægi í höfunum.

Hinir fara bara og bíta gras.

Hafsteinn Viðar Ásgeirsson, 20.6.2009 kl. 07:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Hafsteinn Viðar Ásgeirsson
Hafsteinn Viðar Ásgeirsson
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (8.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 10
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 9
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband