Mogginn trúr eigendum sínum.

Það er ekki slegið af í áróðrinum fyrir nýja eigendur Mogga. Reynsla Íslensku þjóðarinnar er engu betri af kvótakerfinu hér á landi og gallinn við það er sá að það er smíðað af LÍÚ og þjóðin hefur látið það yfir sig ganga, þrátt fyrir að vera því andvíg. Við getum engum kennt um eins og Skotar þó geta.
mbl.is Skelfileg reynsla Skota af fiskveiðistefnu ESB
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hjörtur J. Guðmundsson

Kvótakerfið íslenzka er ekki gallalaust og sjálfsagt að gangrýna það eins og annað. En að segja að reynslan af því sé engu betri en reynslan af fiskveiðistjórnun Evrópusambandsins er í engum tengslum við raunveruleikann. Eru 80% fiskistofna við Ísland ofveiddir og 30% þeirra í útrýmingarhættu? Þannig er staðan innan lögsögu sambandsins .

Hjörtur J. Guðmundsson, 29.6.2009 kl. 11:57

2 Smámynd: Einar Solheim

ESB gerir sér a.m.k. grein fyrir því að kerfið er gallað og eru að hamast í allsherjar endurskoðun.  Okkar kerfi hefur hins vegar augljósa galla sem eru öllum ljósir, en hér er hausnum aðeins barið í stein og ekkert má gera til að beturumbæta kerfið nema afrakstur breytinganna fari í vasa kvótahafa.

Einar Solheim, 29.6.2009 kl. 13:00

3 Smámynd: Sigurður Þorsteinsson

Einar Solheim  kerfi ESB hefur þann galla að þar er verið að rústa nánast öllum sjávarútvegi í Evrópu. Þegar spurst er fyrir um endurskoðun á sjávarútvegstefnunni, sem þú kallar að þeir séu að hamast í, þá kannast menn lítið sem ekkert við allsherjar endurskoðun. Hins vegar heyrðist ein nefndarmanna í nefndinni sem fjallar um sjávarútveginn í ESB, segja svo aðrir heyrðu: ,, Þessi andskotans kerfi gengur ekki lengur", síðan hefur ekkert meira verið gert, og talinn allnokkur tími þar til að málið fari á það stig að vera sett á einhverja dagskrá.

Sigurður Þorsteinsson, 29.6.2009 kl. 13:39

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Hafsteinn Viðar Ásgeirsson
Hafsteinn Viðar Ásgeirsson
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (30.4.): 3
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 15
  • Frá upphafi: 942

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 15
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband