Páll er mikið og vanmetið séní.

Það ætti að vera öllum ljóst, að maðurinn er ekkert minna en séní. Enda eins og Hrafninn segir, þekktastur fyrir að tapa milljón fyrir hádegi og annari eftir hádegi, (þó ekki sé nú allt hafandi eftir Hrafni þessum..Bandit Það datt nú nærri af mér hausinn í gærkvöldi, þegar það kom fram að hann hefur ekki hróflað við sölu og markaðsdeild, þar er verið að halda uppá einhverja 27 hausa, eða álíka marga og öðrum dugir til að reka sjónvarpsstöð?

Nei það þarf ekki að deila um hann Pál, hann er löngu búinn að setja sig á stall með öðrum snillingi úr Eyjum, þessum sem ekki mátti vera að því að ferðast eins og annað fólk, hann var svo upptekinn við að tapa peningum.


mbl.is 700 milljóna króna bati á milli ára
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Klókt hjá Steingrími.

Nú geta þeir ekki talað eins og þeir séu búnir að vera á tunglinu undanfarin ár. Ef þeir hafa ekki náð því sem við þá var sagt þarna er varla hægt að hjálpa þeim.
mbl.is Hollendingar gefa sig ekki
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Af fullum þunga.

Hvað ætli að "fullur þungi" hjá útrásarvíkingi sem þessum þýði??? Ég ætla að giska á að hann hann mælist ekki á neinum vogum, hann er algert ónýti maðurinn. Þar af leiðandi er vel hægt að segja um liðveislu þessa til handa sjávarútvegsfyrirtækjum, að þeir sem eiga vini sem þennan, þurfa ekki á óvinum að halda.

En auðvitað er bankinn að gera tilraun til að krafsa eitthvað uppí öll ónýtu útlánin sem hann á í sjávarútveginum og ekkert liggur á bakvið, annað en veiðiheimildir, sem eru ekki einusinni eign fyrirtækjanna.


mbl.is Vanhugsuð aðgerð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skrattinn sér um sína.

Það er nokkuð ljóst, að það verður séð til þess að arkitektar verstu drulluklessanna í hruninu verða hreinsaðir og þvegnir. Það er nú eins og að einhver sérstök ástæða sé til að skeina svona pilta? Sá hefði nú mátt brenna dálítið á rassgatinu. En þetta á sennilega bara eftir að versna, þeir eru allsstaðar inni. Svipað og þegar kommalýðurinn stal þjóðarauðnum í Rússlandi við fallið. Tóku bara draslið hvar sem það var í heiminum.
mbl.is Ólafur heldur Samskipum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvernig getur skötuselur truflað störf nefndar??

Það er af og frá, skötuselurinn er alsaklaus. Nema verið sé að líkja Friðrik Jóni Arngrímssyni við skötusel?? Hann FJA virkar ekki mjög vel í viðtölum í sjónvarpi, og mér finnst skötuselurinn mun gerðarlegri, einhvernveginn. Og hann er langtum verðmætari, það er ekki spurning.

En að slepptu öllu gamni, virðast Líjúgarar vera að mála sig útaf borðinu með dæmalausum asnagangi og raunverulega spurning hvað stjórnvöld geta verið að hlusta eftir "hjartslættinum" frá, að stórum hluta, dauðvona og gjaldþrota yfirgangsseggjum þeirrar gerðar. Einhversstaðar er línan, menn eru að verða búnir að strekkja hana óþarflega mikið.

Það næst aldrei sátt um þetta mál eins og LÍÚ hugsar það, það er alveg hægt að gleyma öllu slíku.


mbl.is Skötuselur truflar enn störf sáttanefndar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Peningalykt" hverfur.

Nei hún hverfur ekki. Það sem hér hefur verið vandamál leysist ekki með turnum. Ýldulykt verður alltaf af skemmdu hráefni, það er öruggt og marga dagana er hún verst á svæðinu í kringum húnæðið. Uppúr niðurföllum í götunni og af afhleðslu vagnanna og þrifum á viðbjóðinum útí götuna. Það breytir engu hvað sett verður upp af dýrum turnum, svo lengi sem afferming og þrif á draslinu fer fram útí götu.


mbl.is Þorlákshafnarbúar losna við peningalyktina frá Lýsi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nú?

Eru þessar undirskriftir ekki allar bull? Ég hefði haldið það, ef ekki eitthvað ennþá verra.
mbl.is Bullundirskriftum fækkar stórlega
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ég hef nú þá trú...

Á honum Barack Obama, að hann eigi eftir að láta til sín taka varðandi þetta mál. Auðvitað er nokkuð öruggt að þessir sömu peningagráðugu fjármálamenn, einhverjir allavega, hafa lagt honum til fjármuni til að verða forseti, en ég trúi samt að hann láti að sér kveða á þessum vettvangi. 
mbl.is Obama gagnrýnir gráðuga bankamenn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ómarktækur Illugi níundi.

Það er bara ekkert gerandi með það sem frá honum Illuga kemur lengur. Hann fór þannig að ráði sínu varðandi útreikningana í sjóði níu að hann þarf að reikna mjög lengi og rétt til að mark verði á honum tekið að nýju.
mbl.is Vísa fullyrðingum um villandi framsetningu á bug
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Beitt og gagnrýnin umfjöllun Mogga.

Um málefni Sægreifa og Haga er sko virkilega eitthvað sem norrænir blaða og fréttamenn ætti að láta sig einhverju varða.
mbl.is Segir norræn blaðamannafélög fara með rangt mál
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Hafsteinn Viðar Ásgeirsson
Hafsteinn Viðar Ásgeirsson
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (15.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 16
  • Frá upphafi: 985

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 16
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband