Það er búið að taka tímann sinn.

Það er ótrúlegt að hafa þurft hálft ár til að stökkva inní þessa þvælu? Það bendir að sjálfsögðu til að það sé ekki eftirsóknarvert að koma að málinu og þá um leið að fjármögnun þessa gæja hefur ekki verið reyst á mjög traustum grunni. Vonandi er ekkert vafasamt á ferðinni, en sé svo, þá tekur örugglega tíu ár að finna útúr því og íslenska þjóðin verður búin að greiða milljarða fyrir lögfræðinga þegar það verður klárað.
mbl.is Kaupþing yfirtekur viðskiptaveldi Tchenguiz
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Menn eru nú öllu vanir þarna.

Það er nú ekkert endilega verið að henda mönnum eða hegna í þessum flokki þó þeim verði eitthvað smáræði á í sannsögli eða meðferð fjármuna. Það þarf nú ekki að fara lengra en í Villa, þann gamla góða, veit ekki betur en að hann sé í embættum fyrir flokkinn ennþá? Og svo mætti áfram telja, fólk verður fljótt að finna eitthvað mönnum til varna og gleyma ruglinu.
mbl.is Sjálfstæðisflokkurinn logar vegna styrkjanna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ha,ha,ha, góður!

Það þarf ekki að kenna honum Ferguson neitt í þessum efnum. Ég hinsvegar átta mig ekki alveg á púðrinu í þessari "frétt". Þessi tittlingaskítur er tekinn útúr ummælum á blaðamannfundi og menn greinilega búnir að missa sig í því að fá fram einhver leiðindi á milli þessara manna, Ferguson greinilega gerir bara grín að tilburðunum. það er allavega ljóst að hann óttast ekki mikið lið Liverpool hvað þá benites þennan.
mbl.is Ferguson svarar Benítez
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vissi nokkur maður um þessa styrki?

Mér sýnist málið vera svo galið að enginn hafi haft um þetta vitneskju. það styrkir mig í þeirri vissu að það hafi öll forystan vitað af málinu og þess vegna muni allur píramídinn falla ef skriðan fer af stað.
mbl.is Illugi: Vissi ekki um styrkina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það er ekkert undarlegt við það.

Hver mundi vera gapandi í fjölmiðlum við sömu aðstæður? Það er örugglega ýmsu að sinna þessar stundirnar svona svo það verði bara hægt fyrir þessa menn að láta sjá sig.
mbl.is „Upphæðirnar koma á óvart"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Í ljósi atburða vetrarins??

Henni Þorgerði Katrínu finnst afar ósanngjarnt að kjósendur skuli ekki vera á hennar nótum eftir atburði vetrarins. Ástæðu þess að kjósendur eigi að flykkjast um hana telur hún vera, að Sjálfgræðisflokkurinn sé með lausnirnar á vandamálunum og þar er sko ekki verið að tala um nýja skatta eða álíka "sossa"-rugl.

Mér finnst alltaf alveg magnað og raunar aðdáunarverð kokhreysti, að geta komið fram fyrir þjóð sína, skælbrosandi, og láta eins og allur pakkinn sé heilaþveginn og ætlast til að fólk kaupi bullið. Þetta er ekkert annað en yfirgengileg móðgun við skynsemi fólks og getu til að sjá í gegnum skepnuskapinn og ruglið. Vonandi er það einhver misvísun, að enn séu 25% þjóðarinnar ekki búnir að átta sig.


mbl.is „Hvítþvegin bleyjubörn“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Guðlaugur hengdur. Og er þá sagan öll?

Nú virðast þeir sem helst tjá sig um málið vera á því, að það þurfi að víkja honum Guðlaugi og þá verði allt gott hjá þeim. Það er merkileg niðurstaða, í gær voru þeir tilbúnir til að láta duga að hengja burtfloginn formann. Þetta er ótrúlegur málatilbúnaður sértrúarsöfnuðar Davíðs. Ætli hann Kjartan garmurinn, Landsbankatengill safnaðarins hafi nú ekki eitthvað komið að málinu?

Ekki trúi ég að fólk sé tilbúið til að kaupa þessar söguskýringar, nema þá kannski "innmúraðir og innvígðir". Annars þurfa þeir engum að standa reikningsskil gerða sinna, þeir eiga þetta allt skuldlaust og kjósendurna með.


mbl.is Guðlaugur Þór hafði forgöngu um styrkina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skítalyktin er allt að kæfa.

Þeir eru svo yfirgengilegir þessir drullusokkar að það setur hreinlega ótta að fólki, ósvífnin er slík. Það er nú ekki annað að sjá en að heppilegast sé að vista sig með öðrum þjóðum, meðan mesti óþverrinn gengur yfir, en sennilega verður maður dauður þegar búið verður að hreinsa þjóðina af þessum skíthælum, og þeir sennilega líka, flestir. Verst að í þessum umrædda flokki er engan bata að sjá í andlitum þeirra sem yngri eru og það er að hræða mann mest.

Ég lagði nú á mig talsverðan leiðangur til að kjósa í Tromsö í gær samt, kannski til lítils?


mbl.is 30 milljóna styrkur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Erann að reyna að tala sig og sína í stuð?

Það er voða ólíklegt að Sir Alex nenni mikið að velta sér uppúr þessu væli. Benni þessi vælir yfir því að Ferguson eyði miklum tíma í sig og sína, sjálfur er hann aðallega að tala um önnur lið og stjóra. Ja svei.


mbl.is Benítez: Ferguson er hræddur við okkur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fara vonandi ekki erfiðu leiðina?

Það væri nú óskandi að þeir bættu þetta met, það væri ekki sniðugt að þurfa að taka Porto á heimavelli. Það er hinsvegar enginn leikur auðveldur þegar komið er í 8 liða úrslit í Meistaradeild, en þeir eru nú búnir að vera þar áður og þekkja þessa stöðu.
mbl.is Heldur United áfram að bæta metið?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Hafsteinn Viðar Ásgeirsson
Hafsteinn Viðar Ásgeirsson
Mars 2025
S M Þ M F F L
            1
2 3 4 5 6 7 8
9 10 11 12 13 14 15
16 17 18 19 20 21 22
23 24 25 26 27 28 29
30 31          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.3.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 3
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 3
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband