Færsluflokkur: Bloggar

Gamli misgóði situr sem fastast.

Það er augljóst að Villi ætlar að sitja sem fastast, en ég veðja sem fyrr á það að hann verði ekki "borgemaster" meir.

Kastljósið var heldur dapurt við að ná einhverju útúr ræflinum honum Láfa í kvöld, mestmegnis vegna linku spyrilsins, alveg dæmalaust þegar þær líða það eins og stundum gerist, að sá sem situr fyrir svörum haldi bara orðinu og tuði og þrugli um einhverja þvælu, margtuggna, sem enginn hefur áhuga fyrir..Angry... Miklu betra að spila gamla Spaugstofu....Wink


mbl.is Geir: „Tek afstöðu þegar þar að kemur“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mínir menn.

Það eru engir frá mínum mönnum í liði vikunnar og þeir sem horfðu á leikinn í gær vita hvers vegna....Frown
mbl.is Hermann í liði vikunnar hjá Sky
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvaða,hvaða.

Ekkert má nú. En hver sem í hlut á getur huggað sig við það, að þetta er afar kvótavænt, þ.e. það eyðist ekki dýrmætur kvótinn meðan báturinn er í höfn.

Minnir mig á að til mín kom ungur skipstjóri fyrir nokkrum árum, afar óhress með aflabrögðin hjá sér. Ég brást við með því að segja honum að þetta væri afar gott uppá framtíð hans sem skipstjóra. Minn fór að sperra eyrun og vildi fá útskýringu á því, sem ég sagði að væri vegna þess að vegna kvótans og niðurskurðar endalaust væru fyrirtækin farin að sækjast sérstaklega eftir mönnum sem "færu vel með kvótan" og teygðu lopan, þannig að kvótin entist vel. Þannig væru þekktar fiskifælur orðnar "inn" á flotanum og þetta væri allt kvótakerfinu að þakka.

Ég fór hinsvegar að draga í land þegar mér sýndist minn maður ætla að kaupa ruglið....Það er engin saga svo ótrúleg að menn trúi henni ekki uppá kvótakerfi Framsóknar og andskotans....Smile


mbl.is Sex í áhöfn báts voru ekki lögskráðir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ég ætla enn og aftur...

...að spá því að gamli misgóði Villi verði aldrei borgarstjóri aftur...aldrei meir..aldrei meir..
mbl.is Á fundi í Valhöll
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vilhjálmur veit hvað hann syngur.

Þetta er þarft mál hjá Vilhjálmi. Það er augljóst að ræningjahátt stjórnenda í þessum fyrirtækjum þarf að koma böndum á með einhverjum ráðum, þetta er eins og hvert annað bull alls ótengt árangri í rekstri hvað þá annað...Devil
mbl.is Undirbýr málshöfðun vegna starfslokasamnings
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vona að Liverpool vinni.

Ég er að hugsa um að láta eftir mér að halda með Liverpool í dag, aldrei þessu vant. Það væri bara gaman ef þeir legðu Chelsea í dag...Whistling
mbl.is Öflugt lið Chelsea gegn Liverpool
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nú líst mér á það.

Eða hitt þó heldur. Svona umræða í blöðum þarna getur orðið grafalvarleg fyrir íslensku bankana. Eitthvað sem enginn þarf á að halda, það er vonandi að menn geti komið með trúverðug svör inní þessa umræðu.
mbl.is Breskir sparifjáreigendur hvattir til varúðar gagnvart íslenskum bönkum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Falleg útför frumkvöðuls.

Tók í gær þátt í útför góðs vinar, samstarfsmanns og frumherja hér í Þorlákhöfn. Til moldar var borinn Benedikt Thorarensen fyrrverandi forstjóri Meitilsins hér í Þorlákshöfn, sem var eftirlæti (þ.e. Meitillinn) og hugarfóstur föður hans Egils G Thorarensen kaupmanns og síðar kaupfélagsstjóra á Selfossi.

Bensi, eins og við nefndum hann, var afar sérstakur og að mörgu leiti stórbrotinn persóna sem vægast sagt átti nú ekki skap við alla, gat verið afar kaldhæðinn að áliti sumra, en eins og Baldur bloggvinur minn sagði í svo frábærum minningarorðum um Bensa i gær" ef hann skaut, var um að gera að skjóta til baka og þá oftar en ekki fékk viðkomandi virðingu Bensa á eftir"

Því nefni ég þennan vin minn hér á blogginu að við unnum saman í stjórn útvegsmannafélags Þorlákshafnar um 8 ára skeið, ég sem formaður og Bensi sem ritari, og það er margs að minnast.

Síðast hitti ég Bensa hér í búðinni á vikunum fyrir jól og eins og venjulega tokum við smá snerru um kvótakerfi Framsóknar og andskotans og hann taldi, eins og hann hafði sagt svo ótal sinnum áður, að við þyrftum að setjast niður og rifja upp hryllinginn og allt um það hvernig þessum ólögum varð yfir okkur komið. Bensi nefnilega var kvótasinni þegar við vorum að vinna saman að málum útgerðarmanna í næst minnsta útvegsmannafélagi á landinu hér í Þorlákshöfn og nánast vændi mig um landráð að ég skildi ekki kaupa skepnuskapinn orðalaust. En það átti eftir að breytast.

Það hefði enginn maður getað trúað því árið 1985 að Bensi vinur minn mundi sjá svo rosalega til lands í þessum málum að hann kastaði trúnni algerlega...þ.e. þessi gegnheili Framsóknarmaður taldi að nú væri hann búinn að gera nóg fyrir Framsókn, Esso, Samvinnutrggingar og allan þann pakka, hann opnaði augun. 

Hann Bensi var ekki "síðsti móhikaninn" af þeirri kynslóð sem hér settist að uppúr 1950 en þegar hann kom hér voru heimilisfastar 4 manneskjur í Þorlákshöfn. En þeim fækkar ansi hratt finnst mér þessi árin og mér finnst rosalegur sjónarsviptir að hverjum og einum.

Hann Bensi taldi sig finna á eigin skinni hvernig þessi hrikalegu ólög fóru með fólk og fyrirtæki í sjávarplássum landsins, hann horfði hér á þorp 1500 manna, sem hann taldi sig og sitt fólk hafa byggt upp eigin hendi í kringum fiskveiðar og vinnslu. Síðan sér hann allar heimildir til fiskveiða hverfa héðan á braut í einu vetvangi, með því að ESSO ákvað að þeirra eign í fyrirtæki Sunnlendinga, Meitlinum, færi til Vinnslustöðvarinnar í Vestmannaeyjum.

Það eru mjög margir sammála Bensa vini mínum, BLESSUÐ SÉ MINNING HANS og ég ætla að lyfta glasi til minningar um vin minn þegar sjómenn og verkafólk í fiskvinnslu nær vopnum sínum að nýju. 

Far vel kæri vinur....Halo


Toppmenn.

Það er ekkert minna en það, Það er vonandi að þeir hengi eitthvað af titlum í vetur þessir piltar, þeir eiga það skilið. Betri skemmtikraftar eru vandfundnir í boltanum, flestir geta skrifað uppá það..Smile


mbl.is Tvöfalt hjá Manchester United
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Flugbílar.

Litlir, hálftómir, að ég ekki tali nú um galtómir kassabílar eru ekkert annað en "flugbílar" í svona veðri. En ég dreg nú við mig að vorkenna mikið fólki sem "leggur íann" á svoleiðis farartækjum eins og veðurspá og allar aðstæður eru búnar að vera í dag, hreint ekki. Þetta er alveg galið rugl....W00t Gönguferð 013
mbl.is Litlir flutningabílar í miklum vandræðum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Hafsteinn Viðar Ásgeirsson
Hafsteinn Viðar Ásgeirsson
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (30.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband