Færsluflokkur: Bloggar

Hann vonar....

....að orðum fylgi efndir. Það væru nú aldeilis viðbrigði ef það færi nú að gerast, því eigum við ekki að venjast frá hans stjónartíma, nema kannski bændurnir....Shocking


mbl.is Guðni Ágústsson: Engar sögulegar sættir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hann á eftir...

...að taka út "ferðatímabilið". Takið eftir því að einhverjum vikum áður en að hann hættir sem forseti, eftir c.a. 2 ár, leggst hann í ferðalög sem aldrei fyrr og verður í flugvélum síðustu metrana af "forsetatímanum", eflaust til gagns fyrir þjóðina...?Angry

Ungir menn....

....á uppleið og þeir sem þeim ráða heilt vita hvar vel er unnið með unga menn, ófáir snillingar hafa sprungið út hjá Man Utd. Góðar fréttir þetta.


mbl.is Anderson og Nani á leið til Manchester United
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvaða,hvaða...

Andskoti held ég að það sé verið að búa til mikið vandamál úr litlu í þessu viðtali. Ég hef ekki orðið var við þessi gríðarlegu vandamál vegna þessa t.d. í Noregi ?? Og þetta tal um alla reykingamennina sem fari bara að drekka við eldhúsborðið hjá sér til að geta reykt með bjórnum gef ég nú mátulega mikið fyrir. Enda koma í staðin aðrir sem ekki hafa getað hugsað sér að vera í kófinu, en geta nú farið og drukkið bjór án þess að reykja líka, nauðugir. Cool

Kormákur þessi finnur sér væntanlega eitthvað annað að gera, því hann getur ekki séð til sólar í þessu starfsumhverfi, heyrist mér, og vill stjórna lagaumhverfinu og þvinga fram breytingar á því, sem að sjálfsögðu gengur ekki...?Shocking


mbl.is Reykingabann á skemmtistöðum gæti skilið milli feigs og ófeigs
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekki slæmt.

Þetta er ekki slæmur árangur, sérstaklega þegar horft er til þess að tekist hefur, virðist vera, að beita hnífnum með þeim hætti að ekki sér á þjónustunni. Ástæða til að óska Eimu til hamingju með þennan árangur...Wizard
mbl.is Viðsnúningur í rekstri Skipafelagið Føroyar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það er auðvitað...

....ráðið, að reyna að fræða mannræfilinn. Ég hélt að þeir væru nú lengra komnir á þróunarbrautinna austur þar en þetta, en svona gerast kaupin á eyrinni það vantar alltaf skilning og fræðslu, jafnvel þar sem maður hefði haldið að eitthvað væri komið áleiðis....Crying

Væri ekki ráð að drösla honum niður Laugaveginn líka...?Smile


mbl.is Aðstandendur Hinsegin daga buðu borgarstjóra Moskvu í heimsókn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hmmm...

"Samvaxinn liðinu"? Vonandi verður hann það nú aldrei, en trúlegt er nú að viðbrigðin séu mikil, að koma frá McLaren til Ferrari og þurfa að horfa framan í Schumacher alla daga....Shocking
mbl.is Þolir Räikkönen ekki nærveru Schumacher?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Okkar maður.

Nýr ráðherra viðskiptamála, þingmaður okkar sunnlendinga ætlar ekki að liggja á liði sínu, frekar en von var á. Kemur sterkur inn og það á ábyggilega eftir að ganga undan honum ...Smile  
mbl.is Tilskipun um aukið gagnsæi á markaði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hér er hreyft....

...alvarlegu máli. Það er ég alveg handviss um að það er ekki málið hvort það er handfrjáls eða ekki, notkun símans sem slík með akstrinum er skaðræðið. Allir sem vilja vera hreinskilnir þeir viðurkenna þetta og finna á sjálfum sér, þetta snýst ekki bara um að halda á símanum það þarf að hugsa um það sem verið er að ræða og eitt og annað sem truflar mann og það er einfaldlega eitthvað sem ekki er skynsamlegt að leyfa í umferðinni eins og hún gengur fyrir sig í dag...Woundering
mbl.is Handfrjáls búnaður eða ekki, samræðurnar skipta mestu máli við aksturinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Hafsteinn Viðar Ásgeirsson
Hafsteinn Viðar Ásgeirsson
Sept. 2025
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (7.9.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 9
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 9
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband