Hann slær ekki vindhögginn hann Þráinn.

Það er óhætt að segja að hann Þráinn Bertelson hittir naglann á höfuðið í "bakþönkum" í morgun. Frábær pistill sem enginn ætti að láta fram hjá sér fara. Því til áherslu birti ég hann hér.

"Óheppileg umræða!
"Mikil opinber umræða getur verið óheppileg, skapað óraunhæfar væntingar og þar með haft neikvæð áhrif." Geir H. Haarde, formaður Flokksins og forsætisráðherra Íslands, á fundi með Samtökum atvinnulífsins 18. apríl 2008.

Þessi "sakleysislegu" viðvörunarorð benda ótvírætt til þess að það hafi farið fram hjá þessum forsætisráðherra sem vill sveipa aðgerða- og ráðleysi sitt dulúð, að vestrænt lýðræði og stjórnarskrár allra lýðræðisríkja byggja á einum og sama hornsteini: Sá hornsteinn sem öll hin sameiginlega velferð okkar byggist á heitir TJÁNINGARFRELSI. Opinber umræða getur vissulega verið óheppileg, jafnvel banvæn, fyrir óhæf stjórnvöld en hún er undirstaða velferðar almennings. Á því grundvallaratriði að það sé best fyrir heildina að allir hafi óheftan rétt til að tjá sig hvílir þjóðfélagsgerð okkar. Allt annað í stjórnarskrá okkar leiðir af þessu atriði.

Það er ógnvekjandi tilhugsun að skilningur á því sem stjórnarskrá lýðveldisins byggist á skuli ekki hafa náð inn í höfuðkúpuna á þessum forsætisráðherra - heldur. Fyrirrennari hans sem nú er seðlabankastjóri - ekki í Simbabve heldur á Íslandi - vildi setja fornaldarlög um fjölmiðla svo að þeir trufluðu ekki "stjórnvöld" í sinni djúpu hugleiðslu um hagsmunagæslu og samtryggingu útvalinna. Þessi vill ganga feti framar og biðst undan hinum neikvæðu áhrifum sem kunna að vera fylgifiskur mikillar og líflegrar opinberrar umræðu.

Ég held að þetta sé skuggalegasta yfirlýsing sem ég hef séð koma frá íslenskum stjórnmálamanni á síðustu áratugum. Þó hef ég fylgst með fjölmiðlafrumvarpi, uppbyggingu greiningardeilda og stofnun sérsveita. Ég hef heyrt og séð menn réttlæta fasískar lögregluaðgerðir gegn kínverska andófs- og heilsuræktarhópnum Falun Gong. Og síðast en ekki síst hef ég ásamt með þjóðinni fylgst með hinum þrákelknislegu yfirlýsingum varaformanns Flokksins um að hún ætli "víst og samt" á Ólympíuleikana í Peking hvað sem tautar og raular og hvað sem líður Tíbet, lýðræði og mannréttindum - sem hún segist vera búin að ræða nægilega oft við Kínverja.

Þekkir valdhrokinn engin takmörk lengur? Hvað er eiginlega í gangi hérna?"


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Hafsteinn Viðar Ásgeirsson
Hafsteinn Viðar Ásgeirsson
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (3.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 22
  • Frá upphafi: 949

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 22
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband