Það liggur við...

...að hægt sé að segja að þetta séu gamlar fréttir, allavega finnst mér ekkert þarna vera að koma á óvart , miðað við það sem áður hefur komið fram. Einfaldast að blása þetta útaf borðinu í bili og snúa sér að raunhæfum lausnum sem duga í nánustu framtíð. Nýjan, hraðskreiðari Herjolf strax og samhliða kannski að skoða þessa Bakkafjöruhugmynd...
mbl.is „Álitamál hvort göng til Vestmannaeyja séu réttlætanleg"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hallgrímur Guðmundsson

Sammála, stærra og hraðskreiðara skip. Það er einföld og hagkvæm lausn sem ég trúi að flestir séu sammála um.
kv. Halli

Hallgrímur Guðmundsson, 24.7.2007 kl. 22:02

2 Smámynd: Gísli Bergsveinn Ívarsson

Stærra og raðskreiðara skip myndi hjálpa til við að laga samgöngum til Eyja.  Sé ekkert sem réttlætir það að byggja göng til Eyja.

Gísli Bergsveinn Ívarsson, 24.7.2007 kl. 23:31

3 Smámynd: Hafsteinn Viðar Ásgeirsson

Það eru tvær leiðir í þessu; stærra og hraðskreiðara skip, eða annað skip á móti Herjólfi og þau mundu þá ganga frá sitt hvorum endanum. Ef þörfin er svona gríðarleg eins og virðist, þá mundi svona áætlun leysa  mikið held ég.

Hafsteinn Viðar Ásgeirsson, 24.7.2007 kl. 23:41

4 Smámynd: Ólafur Ragnarsson

Ég er satt að segja handviss um að það koma göng til Eyja.En hvort það eru 10-20-30 ár þangað til getur engin sagt til um í dag.Tækninni fleygir svo fram að það sem var ógerlegt í fyrra getur verið framkvæmanlegt á næsta ári.En þangað til hraðskreiðara skip eða annað á móti Herjólfi.Stærðin afmarkast töluvert af höfninni í Eyjum allavega eins og hún er í dag.Nú kæmu sér sennilega vel 10 metrarnir sem Steingrímur lét taka af

Ólafur Ragnarsson, 25.7.2007 kl. 04:01

5 Smámynd: Pálmi Freyr Óskarsson

Heimsendaspár um göngin Áform um Hvalfjarðargöng settu eðlilega mark sitt á þjóðmálaumræðuna þegar við blasti að ráðist yrði í framkvæmdir. Margir lýstu ánægju með að göng undir Hvalfjörð væru loksins í sjónmáli og hlökkuðu til að losna við að aka fyrir fjörð í öllum veðrum. Aðrir voru neikvæðir, höfðu jafnvel uppi gífuryrtar heimsendaspár. Nokkur dæmi skulu tilgreind úr safni tilvitnana í skrif og ummæli andstæðinga Hvalfjarðarganga. Friðrik Hansen Guðmundsson í samtali við fréttamann Útvarps 1. febrúar 1996, eftir fund Verkfræðingafélagsins um Hvalfjarðargöng: "Það liggur bara alveg fyrir eftir þennan fund að mínu mati að menn vita hreint og klárt ekkert hvað þeir eru að fara út í. Það verður ekki ljóst fyrr en menn fara að grafa og bora og sprengja þarna niðri. Þarna eru misgengissprungur, berggangar, þetta er allt saman vatnsleiðandi berglög sem þarna eru á ferðinni og ef menn lenda í þessum göngum þegar það er verið að sprengja niður á við, þar verða menn að vinna í vatni og sprengja í vatni með vatnið alltaf á sér og ef menn lenda í miklum lekavandamálum eins og í Vestfjarðagöngum, sem getur vel komið þarna upp, að þá sér maður fram á að menn gefist bara hreinlega upp." Friðrik Hansen Guðmundsson í fréttum Stöðvar tvö 1. febrúar 1996: "Það síðasta sem við þurfum á að halda sem stöndum í útflutningi á verkfræðiþekkingu er stórbrotið klúður á heimavelli og ef illa tekst upp í Hvalfjarðargöngunum þá mun það varpa skugga ótrúverðugleika yfir alla íslensku verkfræðistéttina." Friðrik Hansen Guðmundsson í fréttum Sjónvarps 1. febrúar 1996: "Ég er að benda á það að eftir þeirri reynslu sem menn hafa erlendis frá þá geta menn lent í hverju sem er þarna ofan í jarðgöngum. Menn eiga þar á hættu að lenda í miklum lekavandamálum eins og menn lentu í í Vestfjarðagöngum. Menn eiga þar á hættu að lenda í vandamálum vegna jarðskjálfta ef þarna á sér stað jarðskjálfti. Það er alveg óþekkt hvað gerist í slíkum göngum sem þessum í jarðskjálfta í þessu bergi sem við höfum hér. Við erum að horfa upp á möguleika á verulegum stórslysum ofan í þessum jarðgöngum ef að þarna á sér stað árekstur ofan í þessum djúpu jarðgöngum. Þarna getur átt sér stað bruni, þarna getur átt sér stað slys og bruni ofan í þessum jarðgöngum að þá geta menn lent þar í gríðarlegum slysum og eins og málin blasa við og standa við sérstakletga eftir þennan fund hér í dag þá hefur ekkert komið fram sem að annað en að styrkja mig í þeirri trú að þarna geta menn lent í stórbrotnu klúðri sem að bitnar síðan á okkur öllum sem búum í þessu landi." Gunnlaugur Þórðarson, lögmaður, í Morgublaðsgrein 20. febrúar 1996: "Gerð ganganna mun án efa kosta mannslíf." "Mér er ekki kunnugt um neinn íslenskan verkfræðing, tæknifræðing né arkitekt, en þeir vera að standa ábyrgir fyrir gerðum sínum, sem fæst til að taka ábyrgð á eða jafnvel mæla með jarðgöngunum." Gunnlaugur Þórðarson, lögmaður, í Morgunblaðsgrein 29. febrúar 1996: "Í þessu máli, sem svo mörgum öðrum milli íslensku þjóðarinnar og norskra stjórnvalda, gildir gamla máltækið "frændur eru frændum verstir". Það er dapurlegt að hugsa til þess að það mun enn, á sinn hátt, rætast í jarðgöngunum undir Hvalfirði." Magnús Sigurðsson skrifar í DV 23. febrúar 1996: "Þeir sem ég hef heyrt ræða göngin telja þau beinlínis óðs manns æði og það skipti verulegu máli að þau verði ekki að veruleika." Ágúst Sigurðsson skrifar í DV 29. febrúar 1996: "Hér er rennt blint í sjóinn, í þeirra orða fyllstu merkingu, með gerð ganganna og þau eiga því miður eftir að verða stór og mikil martröð allrar þjóðarinnar á komandi árum. Mótmæli verða því að koma fram." Jónas Kristjánsson í forystugrein í DV 27. febrúar 1996: "Til marks um þýlyndi Íslendinga má hafa, að engin samtök grípa til varna gegn Hvalfjarðargöngum. Fólk tuðar gegn göngunum í hornum sínum, en notar ekki samtakamátt til að koma í veg fyrir, að göngin verði að einni helstu martröð þjóðarbúsins á næstu árum." "Ef Íslendingar væru ekki þýlyndari en aðrar þjóðir, létu þeir ekki rugl af þessu tagi yfir sig ganga hljóðalaust. Stofnuð væru samtök til að gæta hagsmuna skattgreiðenda og vegfarenda til þess að berjast gegn því, að vandræðin yrðu meiri en þau eru þegar orðin." "Stofna þarf virk almannasamtök til að vernda viðhald og framkvæmdir við veginn fyrir botn Hvalfjarðar og hindra frekari ábyrgð skattgreiðenda á göngunum." Ólafur Sigurgeirsson á Þaravöllum í samtali við Tímann 24. febrúar 1996: "Þessi göng eru eitt mesta umhverfisslys landsins og stórskaði fyrir okkur hér og alla landsmenn. Göngin eiga eftir að verða dragbítur á þjóðfélaginu í áratugi og komast sennilega aldrei í gagnið." Gunnlaugur Þórðarson snýr við blaðinu Gunnlaugur Þórðarson, hæstaréttarlögmaður, var í hópi þeirra sem hvað harkalegast gagnrýndu áform um Hvalfjarðargöng á opinberum vettvangi og vöruðu við að "anað yrði út í" þessar framkvæmdir. Hann skrifaði greinar í Morgunblaðið, 20. febrúar 1996 undir fyrirsögninni "Þjóðardoði" og 29. febrúar 1996 undir fyrirsögninni "Hvalfjarðargöngin, Smugan og Mozart". Gunnlaugi snerist hugur svo um munaði og hann vitnaði síðar í tvígang í Morgunblaðinu um ágæti Hvalfjarðarganga. Þann 25. október 1997 skrifaði hann grein undir fyrirsögninni "Að skjátlast er mannlegt" og rakti hvernig undirmeðvitund sín hefði rumskað þegar fréttir bárust um glæsilegan árangur við gangagerðina: "Gat það verið, að baráttugleðin í fyrrgreindum blaðagreinum hefði leitt mig á villigötur? Og lét þetta mig ekki í friði. Ég varð að skoða verkið með eigin augum." Gunnlaugur fékk síðan leyfi til að skoða Hvalfjarðargöng í fylgd Hermanns Sigurðssonar, verkfræðings og þáverandi staðarstjóra Fossvirkis í Hvalfirði. Eftir þá heimsókn skrifaði Gunnlaugur Þórðarson m.a.: "Heimsóknin í göngin sannfærði mig um , að þar væri unnið stórkostlegt mannvirki, sem yrði þjóðinni lyftistöng og væri vottur þess stórhugar, sem ríkja ætti með íslensku þjóðinni." "Öryggistilfinningin þarna neðanjarðar var dásamleg. Manndómurinn í verkinu er þeim, sem að því standa, til sóma. Í samræmi við áðurnefnt spakmæli hlýt ég að leiðrétta orð mín og hlakka til að fara um Hvalfjarðargöngin fullfrágengin norður á Húsavík að rúmu ári. Til hamingju Ístak og Fossvirki!"

tekið af spolur.is

Pálmi Freyr Óskarsson, 25.7.2007 kl. 05:22

6 Smámynd: Hafsteinn Viðar Ásgeirsson

Ég er sannfærður um það Ólafur, að ef það telst vera eitthvert vit vegna staðsetningarinnar m.t.t. jarðsögunnar o.s.frv. að þá verða á endanum byggð þarna göng, tækninni fleygir svo fram. En að halda að það verði farið í það núna, miðað við allt annað sem fyrir liggur í samgöngumálum held ég að gangi ekki. Auðvitað á að skoða þetta áfram og koma upp þeirri þekkingu á svæðinu sem tiltækt er og ef einhverjum dettur í hugað stökkva á það þá er það ágætt, (einkaframkvæmd) hver veit. En þar til til þess kemur verður að leysa þetta með skipum, einu eða tveimur eftir atviku.

Langhundinum um Hvalfjarðargöng hérna á undan ætla ég að svara með þessu líka, auk þess sem hvað umferð varðar eru þessi dæmi ekki sambærileg sem gerir samanburð á kostnaði enn óhagstæðari, og raunar alveg galinn samkvæmt þessari frétt. 

Hafsteinn Viðar Ásgeirsson, 25.7.2007 kl. 09:18

7 Smámynd: Hafsteinn Viðar Ásgeirsson

Já ég gleymdi því Ólafur, nú væri fínt að hafa 10 metrana sem Steingrímur J. Sigfússon lét taka úr Herjólfi á sínum tíma, til sparnaðar að manni skilst? Svo mikil var nú framsýnin þá.

Hafsteinn Viðar Ásgeirsson, 25.7.2007 kl. 09:21

8 Smámynd: Ólafur Ragnarsson

Já æe er sammála þessu er þú skrifa.Svona getur nú farið þegar misvitrir stjórnmálamenn eru með puttana í svona málum.Mér skilst að sryttingin hafi verið gerð vegna þess að skipið væri í fullri lengd of langt fyrir Slippstöðina á Akureyri.Sem náturlega var á áhrifasvæði Sigfúsar.En það sorglegasta við þetta allt að norður,hefur skipið(að ég held)aldrei komið.Í staðin höfum við þennan hálfgerðan"bastard"af skipi og minni vinnu fyrir þá fyrir norðan sem viðhaldi þessa skips nemur.Jón R Eyjólfs skipstjóri(allan tíman með þann gamla og byrjaði með þann nýja)sagði sannleikan í viðtölum,fékk bágt fyrir go varð að hirða pokann.Sennilega vegna þessara 10 metra.

Ólafur Ragnarsson, 25.7.2007 kl. 12:05

9 Smámynd: Ólafur Ragnarsson

Það á ekker að standa æe heldur einfaldlega"ég"

Ólafur Ragnarsson, 25.7.2007 kl. 12:06

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Hafsteinn Viðar Ásgeirsson
Hafsteinn Viðar Ásgeirsson
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 9
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 9
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband