Er verið að gefa eitthvað fyrir svona útreikninga?

Eftir allan skítinn sem er búið að reikna okkur á kaf í, er vandi að sjá mann taka mikið mark á greiningardeildum, þeim hinum sömu og hafa dælt yfir okkur öllu bullinu á liðnum misserum og árum. Nei, ég ætla frekar að lesa stjörnuspána eða bara tala við hundinn minn. Hún hefur ekki hundsvit á peningamálum auðvitað hún Perla, en það hafa greiningardeildir ekki sýnt af sér heldur, svo það er jafnt á komið.
mbl.is Reiknar með að krónan styrkist enn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ólafur Ragnarsson

Sæll minn góði blogvinur.Já ég myndi frekar trúa henni Perlu en greifunum í þessum  greiningardeildum.Og ég er líka viss um að hún myndi gelta að þeim kæmu þeir nálægt henni.Slík væri virðing hennar fyrir þeim.Ég kvitta hér fyrir mörg innlit sem ég hef ekki hunskast til að gefa komment á.Sértu ávallt kært kvaddur

Ólafur Ragnarsson, 9.12.2008 kl. 17:59

2 Smámynd: Hafsteinn Viðar Ásgeirsson

Blessaður Óli!

hef nú ekki verið mikið á ferði hér á blogginu undanfarið. Hef verið að sigla á ýmsum bátum á ýmsar hafnir frá Ålasundi suður í Florö og smala til Målöy. Það er bara gaman af því og gott að vera laus frá ruglinu þarna í bili.

Kær kveðja. HVÁ

Hafsteinn Viðar Ásgeirsson, 10.12.2008 kl. 12:28

3 Smámynd: Víðir Benediktsson

 Þú getur allavega treyst því að Perla lýgur þig ekki fullan.

Víðir Benediktsson, 10.12.2008 kl. 20:23

4 Smámynd: Vignir Arnarson

Hún er nú ekki vitlausari en það hundurinn að ég hitti hana á gangi um daginn og hún sagði mér að þú værir á heimleið núna allra næstu daga ,,,,,,,,,,,,,,,,,

Vignir Arnarson, 11.12.2008 kl. 09:23

5 Smámynd: Hafsteinn Viðar Ásgeirsson

Ekki væri eg hissa Vignir ad hun findi a ser ad thad styttist i thad...

Ja Vidir, thad er ohætt ad treysta a hana, meira en hægt er ad segja um margan manninn.

Hafsteinn Viðar Ásgeirsson, 12.12.2008 kl. 17:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Hafsteinn Viðar Ásgeirsson
Hafsteinn Viðar Ásgeirsson
Okt. 2024
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (31.10.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband