7.5.2008 | 20:02
Góð forystugrein frá Þorsteini Pálssyni í dag.
Það er allt of lítið um vitræna umræðu um hugsanlega aðild okkar að ESB og "flotkrónuræfilinn", að mér finnst. Það er helst að Jón Baldvin kryfji hlutina af þekkingu og núna síðast í Silfrinu á sunnudaginn síðasta. Í Fréttablaðinu í dag er hinsvegar góð grein eftir Þorstein Pálsson og það er óhætt að segja að hann kemur sterkur inn karlinn. Þar sem mér finnst gagn að greininni, þó ég kaupi ekki hvert orð, læt ég hana flakka hér með. En ég er viss um að greining hans varðandi sjávarútveginn inní ESB er raunhæf.
"Tímabundinn vandi efnahagslífsins snýst um alþjóðlega lánakreppu. Langtíma vandinn í þjóðarbúskapunum felst hins vegar í því að íslenska krónan er ekki samkeppnishæf. Þetta eru aðskilin viðfangsefni.
En tímabundni vandinn má ekki verða til þess að slegið verði á frest að leggja línur um það hvernig langtíma úrlausnarefninu verður mætt.
Óumdeilt ætti að vera að afar ríka hagsmuni þurfi að setja á vogarskálarnar til að réttlæta ósamkeppnishæfa mynt. Spurningar þar um lúta einkum að sjávarútveginum og Evrópusambandsaðild.
Þrjú atriði koma þar helst til álita. Í fyrsta lagi eru það veiðar úr stofnum innan lögsögu. Á grundvelli reglunnar um hlutfallslegan stöðugleika héldi Ísland þar óskertum veiðirétti. Árlegar ákvarðanir um heildarafla yrðu formlega á hendi Evrópusambandsins. Forsendur ákvarðana yrðu eins og áður álit íslenskra vísindamann og ráðgjöf Alþjóða hafrannsóknaráðsins.
Fiskveiðistjórnun yrði eins og nú ákveðin með lögum frá Alþingi.
Hér eftir sem hingað til yrði úthlutun veiðiheimilda alfarið á höndum íslenskra stjórnvalda. Eftirlit yrði með sama hætti og nú á hendi íslenskra stjórnvalda. Efnislega raskast því engir hagsmunir. Óhagræði væri hins vegar að því að eiga heildaraflaákvarðanir undir ráðherraráði sambandsins þó að þær skiluðu sömu niðurstöðu og einhliða ákvörðun sjávarútvegsráðherra Íslands.
Í ljósi þess að hér er ekki um að ræða sameiginlega fiskistofna væri rétt að setja fram kröfu um að innan ramma sameiginlegu fiskveiðistefnunnar yrði hafsvæðið hér sérstök stjórnunareining. Þó að slík ráðstöfun fæli hvorki í sér meiri né minni veiðirétt myndi hún draga úr óhagræði við ákvarðanatöku. Þessa tillögu má rökstyðja með skírskotun í evrópskar grundvallarreglur og fordæmi.
Í annan stað þarf að líta á veiðar úr deilistofnum og úthafsstofnum. Þær hafa mikla efnahasgslega þýðingu. Í þeim tilvikum semur Evrópusambandið fyrir aðildarlöndin. Eðlilegt er að spyrja hvort sú staða veiki íslenska hagsmuni. Að einhverju leyti gæti hagsmunagæslan orðið flóknari en í heild sýnist staðan hvorki veikjast né styrkjast.
Þriðja álitaefnið snýst um meginregluna um frjálsar fjárfestingar. Þar um höfum við ótímabundinn fyrirvara í EES-samningnum.
Sá fyrirvari hefur verið viss trygging. Margir og þar á meðal ýmsir andstæðingar Evrópusambandsins hafa hins vegar viljað losna við fjárfestingarbannið óháð spurningunni um aðild. Það felur í sér mismunun og gerir stöðu sjávarútvegsfyrirtækja þrengri á ýmsa lund. Eigi að síður er það vel rökstyðjanleg jafnræðiskrafa að halda þessum fyrirvara tímabundið meðan samkeppnisfyrirtæki í evrópskum sjávarútvegi njóta styrkja.
Hér hefur ráðstöfun afla fiskiskipa aldrei verið takmörkuð við landið eða einstök svæði. Slíkir átthagafjötrar vinna gegn hagræði markaðslögmálanna. Þó að engin rök standi til að setja reglur af þessu tagi er rétt að hafa í huga í tengslum við erlenda fjárfestingu að rétturinn til að setja þær hverfur ekki með Evrópusambandsaðild.
Af þessu má ráða að sameiginlega fiskveiðistefnan og erlend fjárfesting gætu falið í sér ákveðið óhagræði og minniháttar áhættu. Með rökum verða þessi atriði hins vegar ekki metin svo þung á vogarskálunum að þau útiloki aðild að Evrópusambandinu og samkeppnishæfu myntsamfélagi sem er sjávarútveginum ekki síður mikilvægt en öðrum atvinnugreinum. "
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 20:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
7.5.2008 | 19:35
Hér er klárlega verið að gera eitthvað af viti.
![]() |
Fangar snúa við blaðinu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
6.5.2008 | 19:35
Mætti halda að ekki væri feitan Gölt að flá.
![]() |
Atlantsskip semja við Eimskip og hætta rekstri skipa |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
6.5.2008 | 10:57
Auðvitað þarf Nani að skammast sín.
![]() |
Nani biðst afsökunar á rauða spjaldinu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
6.5.2008 | 10:49
Sveinar Ferguson eru ekki óvanir henni.
![]() |
Grant: Pressan er á Man. Utd |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
5.5.2008 | 21:00
Vonum seinna.
![]() |
Óskað eftir afskráningu Icelandic Group |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
5.5.2008 | 20:31
Hann Ólafur er ekkert að skipta um skoðun.
![]() |
Ólafur segist ekki hafa skipt um skoðun |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
5.5.2008 | 20:20
Hann sér það ekki hann Keegan.
![]() |
Kevin Keegan: Sé ekki að Man Utd misstígi sig |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
4.5.2008 | 12:14
Vitleysan ríður ekki við einteyming.
![]() |
Borgarstjóri gagnrýnir vinningstillöguna |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
4.5.2008 | 07:57
Kjúklingaverksmiðjur berjast um hart.
Það er eðlilegt að öllu sé borið við af hendi kjúklingaverksmiðja til að geta viðhaldið einokun og okri. Ég hef ekki meiri samúð með málstað kjúklinga og svínaverksmiðja (allra í eigu banka og stórfyrirtækja) en með hverri annarri okurstarfsemi. Og nú er það atvinna þeirra sem í verksmiðjunum vinna, oftast er það nú sjúkdómaáróðurinn.
Það er komið að þessari innleiðingu matvælalöggjafarinnar og hún mun kannski verða til að lina þjáningar neytenda. Það er ekki að efa, að framsóknarmenn allra flokka munu reyna að þæfa málið eins og hægt er en á endanum trúi ég að neytendur hafi sigur.
![]() |
Spáir miklum innflutningi á kjúklingabringum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 12:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Færsluflokkar
Bloggvinir
-
baldurkr
-
hallgrimurg
-
solir
-
jakobk
-
gretarro
-
sailor
-
hallibjarna
-
framtid
-
sisshildur
-
king
-
siggith
-
start
-
helgigunnars
-
villialli
-
himmalingur
-
drum
-
gisgis
-
hallidori
-
xfakureyri
-
ferskur
-
gisliivars
-
johnnybravo
-
peturorri
-
baldvinj
-
bjarnihardar
-
gudmbjo
-
gudni-is
-
bleikaeldingin
-
fruheimsmeistari
-
gudrunmagnea
-
gustav
-
reynzi
-
zeriaph
-
gattin
-
seinars
-
siggisig
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (11.9.): 4
- Sl. sólarhring: 4
- Sl. viku: 7
- Frá upphafi: 1496
Annað
- Innlit í dag: 4
- Innlit sl. viku: 7
- Gestir í dag: 4
- IP-tölur í dag: 4
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar