Færsluflokkur: Bloggar

Óóó.....

....áttu menn ekki von á því eða hvað? Ég hafði nú alltaf trú á því að kallinn mundi kjósa....?
mbl.is Ómar kaus í morgun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fjölmiðlar...

....Sjálfstæðisflokksins (og Lúðarnir fljóta með ennþá) þ.e. Moggi, Blaðrið og RÚV toppuðu nú hressilega núna. Það hefði nú þurft að segja mér það oftar en einu sinni í gærkvöldi, að viðtalið við sjómennina á Stöð 2 í gærkvöldi yrði þagað svona gersamlega í hel að það væri ekki á það minnst??? Algerlega ótrúlegt að fletta Mogga í morgun og ekki eitt einasta orð um málið???

Þarna koma fram tveir grandvarir og stálheiðarlegir menn, sem örugglega vita hvað þeir eru að segja og auk þess búnir að taka þátt í ruglinu og mér allavega fannst þetta mörgum sinnum merkilegri frétt í gær en allar hinar, að skoðanakönnunum meðtöldum. Auðvitað vitum við sem teljum okkur þekkja þankaganginn hvað hér er í gangi, það er haldið áfram lygunum með þögninni, svo einfalt er það nú.

Allt plottið gengur útá að rugga ekki við bátnum fyrir kosningar, sem eru jú í dag, gott fólk þær eru í dag, og þeir sem bera ábyrgð á því kvótakerfi andskotans sem leiðir af sér svona drullusokkshátt eru að biðja þjóðina um framlengingu á umboðinu, til frekari niðurlægingar fyrir sjávarbyggðir og alla þá sem eru tengdir sjávarútvegi. Það er ekki endilega það að það þurfi að henda kerfinu fyrsta ganginn, heldur er málið að stoppa í vitleysuna sem þessi alvitlausa verðmyndun og í leiðinni vigtun í vinnslustöðvum kvótaeigenda með framhjálöndun og um leið meðgjöf til þeirra leiðir af sér, það eru sterkar vísbendingar um að svoleiðis kerfisbreyting mundi stórlaga ástandið þessari svínastíu..... ÞAÐ ER VITLAUST GEFIÐ og það verður að skipta út gjafaranum því hann er búinn að gefa vitlaust allt of lengi og við höfum fengið nóg.

Ég trúi bara ekki að fólk muni leiða hjá sér þá umræðu sem fór í gang með Kompásþættinum, ég neita að trúa því og hef bara meira álit á almenningi en það og greinilega miklu meiri trú en Moggarnir, allir, sem ekki treysta fólki til að fara með svona fréttir á kjördag. Ég skora á alla hugsandi menn og konur að spyrja spurninga í dag og ekki láta draga sig á kjörstað eins og rollur í rétt, umhugsunarlaust.

Hengi hér að endingu fyrri tilskrif frá mér af sama meiði, sem eru í fullu gildi. Hafiði góðan kjördag.

Slóð: http://hva.blog.is/blog/hva/entry/155289

Slóð: http://hva.blog.is/blog/hva/entry/166944

Slóð: http://hva.blog.is/blog/hva/entry/187864


Framsóknarfylgið...

...hefur verið þarna allan tímann einhversstaðar, í þeim sem ekki gefa sig upp. þannig hefur þetta oftast virkað, enda hver er tilbúinn til að lýsa því yfir að hann ætli að kjósa Framsókn....í alvöru? þessu hef ég spáð lengi og varað við allri bjartsýni varðandi það að hagsmunagæsla og vinnumiðlun- Framsóknar væri að leggja upp laupana það er of gott til að vera satt.

Þeir tapa einhverju af lausafylgi sem auglýsingar til unga fólksins týndu inn síðast, þar sem allt hefur verið svikið eða verra en það, en hitt hangir við þá eins og alltaf. Bændur og búalið fara ekkert að opna augun neitt sérstaklega núna, enda hafa þeir sennilega minnsta ástæðu til að hegna þeim.Shocking


mbl.is Fylgi Framsóknarflokks dalar á ný
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ósmekkleg???

.....Afar viðeigandi miðað við framgöngu Björns gegn Baugi, leynt og ljóst, að ekki sé nú talað um það sem nú virðist í kortunum þ.e. að setja þennan endemis aula Ríkissaksóknara???? Hvað er í gangi eiginlega???Bandit
mbl.is Geir: Auglýsing Jóhannesar ósmekkleg og óviðeigandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hann Birgir...

...ætlar ekki að klikka á því að komast áfram þarna, frábær árangur, enn og aftur.
mbl.is Birgir Leifur: „Ég ætla að sækja af krafti“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er það ekki...

...kallað að vera innanfeitur, oft heyrt það, gott það er búið að finna útúr því.??? 
mbl.is Fitan innvortis í grannvöxnu fólki?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það var mikið.

Og þótti nú engum mikið, það er nú eins og allt hafi verið fullreynt fyrir löngu og afar eðlilegt að veita honum vistun um tíma. En þá er það spurningin verður hægt að koma honum inn á viðeigandi stað eða þarf að vista hann í "skólanum" þannig að hann komi vitlausari út en hann fer inn. Eða það sem líklegra er, er nokkursstaðar pláss yfir höfuð?
mbl.is Þriggja mánaða fangelsi fyrir margítrekuð umferðarlagabrot
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sameiningin...

...loksins að skila sér, eða hvað? Þessi aðgerð var alltaf sögð sú veigamesta af því sem koma mundi útúr sameiningu SH og ÍS og því undarlegra þegar tapið fór bara í enn stærri tölur og alltaf reknar tvær verksmiðjur...?Errm   
mbl.is Lokun verksmiðju Icelandic USA í Maryland flýtt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Svakalegt...

...kæruleysi er hér á ferð og með hreinum ólíkindum að það skuli koma fyrir, eins og kerfið er orðið, að menn bara "gleymi" að láta vita af sér, vitandi upp á hár hvað fer í gang. Það er ekki spurning að í svona dæmi þarf að liggja fyrir hvað það kostar fólk að "gleyma" svona hlutum, þá getur það valið á sinn kostnað að halda björgunaræfingu...Angry
mbl.is Gleymdu að láta vita
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Hafsteinn Viðar Ásgeirsson
Hafsteinn Viðar Ásgeirsson
Sept. 2025
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (10.9.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 3
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 3
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband