Færsluflokkur: Dægurmál

Það þættu nú ekki fréttir hér sunnan heiða?

Aldeilis ekki, hér eru flestir hættir að nenna að standa í að kæra þjófnaði, enda löggan öðrum hnöppum að hneppa, oftast nær. Svo þjófar leika lausum hala í hópum og heita þá þjófagengi.
mbl.is Þjófur leikur lausum hala á Ísafirði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekki bendir það til að markaðurinn hafi trú á aðgerðum stjórnvalda?

Og kemur kannski ekki á óvart. Allt þeirra háttalag hefur verið með endemum fálmkennt, of seint og of lítið.
mbl.is Krónan veiktist í dag um 0,55%
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hann Pálmi virkar örugglega á bryggjunum.

Þar er nefnilega málið að hafa góða skapið og skemmtilegheitin innbyggð og einhvernveginn held ég að hann sé þannig. Skapvondir, húmorslausir hafnarverðir, sem eru allt of margir, eru algert skaðræði.
mbl.is Pálmi Gestsson hafnarvörður í Bolungarvík
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það eru nú varla tíðindi, "fjandinn hafi það".

Einu skiptin sem ég fer í fílu við gasgrillið mitt, er þegar EKKI kemur í það eldur. Þarna virðist mér hinsvegar grillið hafa kveikt í einhverju sem ekki mátti loga og það munu hafa verið tíðindin.
mbl.is Eldur í gasgrilli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekki líklegir til stórræðanna.

Það verður að segjast eins og er, að ráðherrar þessir virðast nú ekki vera líklegir til mikilla afreka. þeir hafa nú helst verið að telja sér til tekna að hafa dregið allar aðgerðir, það hafi sparað ansi drjúgt í kostnaði við lántökur? Svo fengum við einhverja moðsuðu frá forsætis um að við ættum að labba og spara eldsneyti, (þarf auðvitað ekki neinn speking eða ordrur að ofan til að skilgreina það) á meðan eldarnir brenna allt í kringum okkur og ekki er lyft fingri til að koma lagi á peningamálin og flotkrónuræfillinn er í frjálsu falli

Það þarf nú að vera ansi illa heilaþveginn til að geta talið sér trú um að þessir trúðar séu á vetur setjandi.


mbl.is Ráðherrar funda með aðilum vinnumarkaðarins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þeir halda áfram að nudda...

Ekkert bítur á þessari endemis þrjósku þeirra spanjóla, aldeilis ótrúlegir, vonandi verður þeim ekkert ágengt frekar en fyrri daginn.
mbl.is Real bíður viðbragða Ronaldos
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Verður vonandi snjólétt sumar.

Það er vonandi að sumarið verði snjólétt þarna fyrir austan, ef ekki, er líklegt að það verði flótti fólks í blíðuna hérna fyrir sunnan...Smile  það er nefnilega ekkert lát á henni.
mbl.is Snjóþekja á Fjarðarheiði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nú hafa þau séð ljósið hjá Lýsi hf.

Það er ekki að efa það, að það mun verða bylting í drullupestinni frá þeim skítmokurum við að hætta að þurrka bein á skrifstofunni og að ég tali nú ekki um ef þeir fá að setja upp turnana góðu, eða hitt þó heldur.

Mér finnst sjálfsagt að setja upp þessa turnan og yfirhöfuð að leyfa eins mikla sóun peninga og óskað er eftir þarna, síðan á að standa vaktina og loka á starfsleyfið þegar brot á því fara að hrúgast upp, því það munu þau gera eins og ávallt. 

Hjá Lýsi hf. eru umhverfissóðaskapur daglegt brauð og nauðsyn, svo það verður ekki vandamál að standa þau að brotum á starfsreglum varðandi "hráefni" og meðferð þess og loka í framhaldinu. Þetta getur aldrei gengið í óþökk meirihluta fólks hérna og mun verða lokað á endanum, með eða án turna.  

Fréttablaðið, 19. jún. 2008 06:30

Engin fiskþurrkun á skrifstofunni

mynd
Fiskþurrkun Lýsis í Þorlákshöfn Lögmaður Lýsis vill að bæjarstjórnin í Ölfusi veiti leyfi til uppsetningar hreinsiturna við fiskþurrkun fyrirtækisins í Þorlákshöfn.Mynd/gks

„Nú stendur upp á bæjarstjórnina að veita Lýsi tilskilin byggingarleyfi fyrir hreinsiturnunum," segir Sigurbjörn Magnússon, lögmaður Lýsis. Hann fagnar niðurstöðum Heilbrigðisnefndar Suðurlands sem nýlega veitti fiskþurrkun Lýsis í Þorlákshöfn tólf ára starfsleyfi og segir niðurstöður nefndarinnar í samræmi við sína túlkun á úrskurði umhverfisráðuneytisins.

Varðandi það hvort önnur starfsemi fari fram í húsum Lýsis en til er ætlast segir hann að fyrir um tveimur mánuðum hafi heilbrigðis­eftirlitið gert athugasemdir við að fiskþurrkun færi fram í húsi sem ætlað er undir skrifstofur. Þá hafi fiskþurrkun verið hætt í húsinu. „Heilbrigðiseftirlitið gerði athugasemdir við þetta og þá var þessu umsvifalaust hætt."


Frábær "Halli".

Hallgrímur Helgason fer á kostum í dag og sannari hefur hann sjaldan hljómað. Svo sem ekki fréttir fyrir marga, en hér afar vel samandregið, mikill sannleikur. 
"Halli ríkissjóðs
Baugsmálinu lauk með lágværu puðri.

Baugsmálinu lauk með lágværu puðri. Harðsvíraðir menn höfðu blásið sig helbláa í framan um sex ára skeið þannig að um tíma var blaðran farin að skyggja á sól þeirra sjálfra, en nú endar þetta svona: Síðasta loftið í blöðrunni taldi tvo stutta andardrætti og lak út úr hæstarétti með lágværi puðri.

Þjóðin andaði léttar en Baugsmenn öllu þyngra. Hún var laus úr sex ára fangelsi Baugsmálaþófs en þeir gengu brott með blett á æru. Sækjendur voru hins vegar bjartsýnir sem endranær: Enn má taka Baugsslaginn á skattasvellinu og svo þarf endilega að búa til nýtt dómstig, úr því hin tvö virka svona illa.

Þingmenn og ráðherrar segja að stjórnvöld verði að læra af þessu illa máli en klappstýrur klögubósa stíga lokadansinn fyrir flórmann Flokksins og gera hróp að hverjum þeim sem hefur eitthvað við málið að athuga. Eftir að hafa masað sig til Þrasborgar hefur Björninn lært að þegja en húnarnir væla.

Formaður næststærsta stjórnmálaflokks þjóðarinnar má ekki tjá sig um lokadóm í Baugsmáli. Og hún ásamt þingflokksformanni sínum á að sýna samstarfsflokknum í ríkisstjórn þá "tillitssemi" (eins og þingmaður Sjálfstæðisflokksins orðaði það í útvarpi liðinnar viku) að tjá sig ekki um Baugsmál. Hér er það sagt hreint út að Baugsmálið hafi verið og skuli vera mál Sjálfstæðisflokksins. Gott að fá það loks á hreint.

Gott er líka að rifja upp orð sömu drengja sem hrópuð voru í hvert sinn sem foringinn fyrrverandi tjáði sig á umdeildan hátt: "Hefur forsætisráðherra ekki málfrelsi?" Segl eru til að haga eftir vindi.

Sárust er niðurstaða Baugsmála þó fyrir margsærðan ríkislögreglustjóra, sem fram að þessu hafði verið eini maðurinn sem hlotið hafði einhvers konar dóm í málinu, þegar honum var meinuð frekari aðkoma að því vegna ummæla í fjölmiðlum. Var fólk búið að gleyma því stutta gamanatriði í miðjum maraþonharmleik?

Ríkislögreglustjóri fellur hér á enn einu prófinu í hæstarétti. Hvernig honum tókst að klúðra hinu skothelda málverkunarfölsunarmáli var óskiljanlegt afrek og þá ber að minnast þess er hann þverskallaðist við að rannsaka olíusamráðið góða. Og enn á ný kemur Hallinn góði og leggur heilan milljarð úr ríkissjóði á borð í hæstarétti og fær fyrir það tvær kleinur og eina bóndabeygju.

En þá skal bara stofnaður nýr og betri dómstóll handa honum. Enn skal mulið undir óhappadrenginn. Það skiptir engu máli hvaða axarsköft hann fremur, ríkissjóður er alltaf til í að borga fyrir Halla sinn. Þessi krókur var snemma beygður: Þegar pilturinn féll á landsprófi gengu Mogginn og Flokkurinn í það að leggja prófið niður. Þegar Halli kom heim frá veturlöngu námi í Flórída var hann gerður að forstjóra fangelsismála, embætti sem ekki var áður til. Næst var hann orðinn varalögreglustjóri í Reykjavík. En þar sem lögreglustjórinn var eitthvað lengi að hætta bjó Flokkurinn til aðra ríkisstofnun handa sínum manni, embætti sem var öllum lögreglustjórum æðra. Og þegar hinn nýbakaði ríkislögreglustjóri varð fyrir því óláni að hella víni yfir mann á bar og hóta honum lífláti (sem hlýtur að vera fremur óskemmtilegt að heyra frá yfirmanni Víkingasveitarinnar) var það litla leiðindamál látið gufa upp úr brynvörðum sakaskrám ríkisins. Í stað þess að fá þriggja mánaða skilorðsbundinn dóm fékk lögreglustjórinn að sitja áfram í embætti (bara hægt á Íslandi) og eyddi næstu sex árum í að knýja fram sömu refsingu á óvin Flokksins númer eitt.

Því Flokkurinn hafði nú gert margt fyrir góðan dreng og því var komið að honum að gera eitthvað fyrir Flokkinn. Baugsmálið kom eins og kallað. En háttsettir gleymdu því að flokksráðnir eru sjaldan mjög hæfir og Halla ríkissjóðs tókst auðvitað að klúðra þessu "pottþétta" máli jafn vel og öllum hinum.

Fáir menn hafa haft jafn mikil áhrif á íslenskt samfélag með axarsköftum sínum og ríkislögreglustjóri. Og enn skulu þau áhrif aukin. Aðeins viku eftir fallið í hæstarétti eru menn farnir að ræða þörf á nýju dómstigi; sérstökum millidómstól til að koma í veg fyrir fleiri háðungar í hæstarétti. Samkvæmt fréttum á hann annaðhvort að heita Lögrétta eða Landsyfirréttur. Leiðrétta og Landsföðurréttur væru þó fremur nöfn við hæfi. Og allt er þetta í boði Sjálfstæðisflokksins, stærsta hluthafans í eignarhaldsfélagi því sem nefnist ríkissjóður. Ekki furða að varðhúnar Valhallar glefsi að þeim sem benda á sukkið. En ætlar Samfylkingin að sitja þegjandi undir þeim ráðherrum sem enn eina ferðina taka upp heftið fyrir Halla sinn? Eða er ekki nóg að komast í ríkisstjórn til þess að uppræta það sem rotið er á Íslandi?"


Gerir nú ekki annað á meðan.

En hún er nú með í farteskinu þennan sem ekkert hefur gert af viti, annað en að þrugla um að láta verkin tala svo þau eru sammála um það?...og nú er að "láta verkin tala".
mbl.is Vörn verður snúið í sókn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Hafsteinn Viðar Ásgeirsson
Hafsteinn Viðar Ásgeirsson
Sept. 2025
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (9.9.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 4
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 4
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband