Færsluflokkur: Dægurmál

Hvernig í veröldinni....?

Hvað eiginlega gerir að verkum að fólk sér sér fært að gefa íhaldinu 29% fylgi? þetta er með algerum ólíkindum hvað minni fólks er brenglað, að þetta geti bara gerst. Ekki gæti ég gefið þessu skemmdarverkaliði atkvæði þó það ætti að drepa mig að öðrum kosti, það segi ég satt.
mbl.is Fylgi stjórnarflokkanna eykst
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Í járnum.

það er oft einkenni góðra leikja, að vera í járnum, en þetta eru afar mikilvæg stig fyrir mína menn.
mbl.is Manchester United lagði Arsenal, 2:1
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Og grundvöllurinn innganga í ESB.

Eitthvað sem flestir gera sér grein fyrir. það gengur auðvitað ekki að rigga upp svona verksmiðju hér ef greiða þarf tolla af framleiðslunni inn til Evrópu. Með tolla á framleiðslunni verðum við að framleiða í ESB landi og taka hráefnið þangað tollfrjálst, að mestu.

En þetta skilja nú flestir, nema einangrunarsinnar úr FLokknum og VG.


mbl.is Bakkavör skoðar enn að reisa hér verksmiðju
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Markaðurinn að meta samþykkt Icesave?

Það er ekki ótrúlegt að peningamarkaðnum sé létt við að sjá að menn ætli að axla sína ábyrgð. Framsókarflokkurinn leikur fífl, allur eins og hann leggur sig og kemur engum á óvart. En sennilega er markaðnum létt, að menn skuli á endanum klára málið, auðvitað án Framsóknar. Hvað annað?


mbl.is Krónan styrktist um 1,25%
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það er nú einmitt mergurinn málsins.

Og kýrin kálfsins. Nákvæmlega þess vegna er verið að gera aðsúg að þessum hátekju, ríkisrekna frjálshyggjupostula. Það verður aldrei of mikið tuggið á hans og annara frjálshyggjupostula, ábyrgð á hruninu. Verst að DO var ekki með honum, en annars er magnað að hann skuli hætta sér óvarinn á göturnar.
mbl.is Aðsúgur að Hannesi Hólmsteini
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kemur nú varla á óvart.

Það hefði nú verið mjög undarlegt ef við hefðum komist hjá því að fá á okkur aðgerðir vegna þessara neyðarlaga. En Spron-málið er alveg sér kapítuli. það var afar undarlegt að sjá okkur taka bankann niður í miðjum klíðum við að semja um aðstoð og nýtt fé inní hann? Vonandi hafa þingmenn ekki verið í veisluhöldum hjá MP til að taka við þökkum fyrir að slátra Spron.
mbl.is Sótt að ríkinu úr öllum áttum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hann má taka undir hvað sem hann langar hann Björn.

Það bara hefur ekkert uppá sig. Það er enginn að hlusta á rausið í honum. Hans tími er liðinn, rétt eins og Davíðs. En hvern þarf nú að undra þó hann fái eina og eina pillu, maður með hans bakgrunn?
mbl.is Tekur undir ummæli Lýðs um árásir í netheimum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hannes er algerlega vammlaus.

Ég varð þeirrar "hamingju" aðnjótandi að heyra viðtalið við þennan veruleikafyrrta hátekju ríkisstarfsmann og ekki hækkaði hann í áliti. Það er með algerum ólíkindum að það sé einhver fjórðungur+ þjóðarinnar sem tilbiður þennan endemis kálf. En þessari þjóð virðist bara vera ætlað að vera í skítnum, allavega verður ekki mikil breyting á meðan við tilbiðjum Holmstone og Davíð.

Það er verstur fjandinn hvað fjölmiðlafólk sýnir endalaust mikla linku við að hafa stjórn á svona blaðurskjóðum við að draga uppúr þeim svör við spurningum í stað þess að lofa þeim að rausa eithvað frá eigin brjósti, sem enginn er að fiska eftir, allt heyrst áður.


mbl.is Hinir vammlausu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það þarf að innsigla hjá hræætunum.

Þessu "Lánstrausti" þarf að loka sem allra fyrst, horfandi á þessa frétt og allar aðrar af þessari og samskonar stofnunum. Eins og mál eru að þróast koma þessir aðilar til með að fitna gríðarlega við að gefa út skotveiðileyfi á fólk í vandræðum.

Þessi frétt er líka að stangast á við aðra hér á síðunni, það hafa allar fregnir sem maður hefur haft af bönkunum, bent til óbilgirni og kröfuhörku sem aldrei fyrr.


mbl.is Á vanskilaskrá í greiðsluaðlögun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Guð láti gott á vita."

Eins og kerlingin sagði. Það er eitthvað lífsmark í bönkunum. Það verður að telja afar líklegt að það sé, eins og málum er komið, hagfelldara fyrir þessi ríkisapparöt að fara einhverja svona leið að skuldurum. Að öðrum kosti er augljóst að efla þyrfti þær stofnanir sem hafa með að gera gjaldþrot fólks og síðan vandséð hvað gera ætti við allar eignirnar.

En það er gott að það er verið að hugsa leiðir uppúr feninu og svosem augljóst að yfir því hefur verið setið í allt sumar. Auðvitað hefur kannski ekki legið neitt meira á en þetta þar sem allir eru með erlendu lánin fryst, en þetta eru góðar fréttir.


mbl.is Bankarnir skoða leiðir til að skuldbreyta íbúðalánum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Hafsteinn Viðar Ásgeirsson
Hafsteinn Viðar Ásgeirsson
Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.11.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 1157

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband